Spá því að verðbólgan hjaðni lítillega

Vextir á Íslandi | 15. ágúst 2024

Spá því að verðbólgan hjaðni lítillega

Greiningardeild Íslandsbanka spáir því að vísitala neysluverðs muni hækka um 0,3% í ágúst, en að ársverðbólga muni þó hjaðna úr 6,3%, niður í 6,2%, gangi langtímaspár eftir. Þetta kemur fram í nýrri verðbólguspá bankans.

Spá því að verðbólgan hjaðni lítillega

Vextir á Íslandi | 15. ágúst 2024

Íslandsbanki spáir því að vísitala neysluverðs hækki lítillega.
Íslandsbanki spáir því að vísitala neysluverðs hækki lítillega. mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson

Greiningardeild Íslandsbanka spáir því að vísitala neysluverðs muni hækka um 0,3% í ágúst, en að ársverðbólga muni þó hjaðna úr 6,3%, niður í 6,2%, gangi langtímaspár eftir. Þetta kemur fram í nýrri verðbólguspá bankans.

Greiningardeild Íslandsbanka spáir því að vísitala neysluverðs muni hækka um 0,3% í ágúst, en að ársverðbólga muni þó hjaðna úr 6,3%, niður í 6,2%, gangi langtímaspár eftir. Þetta kemur fram í nýrri verðbólguspá bankans.

Ekki er þó taldar líkur á að vísitala neysluverðs lækki mikið á næstu mánuðum, en að mati bankans vega áhrif sumarútsöluloka mikið til hækkunar vísitölunnar. Á móti vega hinsvegar flugfargjöld og eldsneytisverð til lækkunar. 

Flugfargjöld hækkuðu meira en spár bankans gerðu ráð fyrir, en þau lækkuðu um 9,6%, en eldsneytisverð lækkaði um 0,6%. Samanlögð áhrif þessa liða á vísitölu neysluverðs eru því neikvæð um 0,23%. 

Bankinn spáir því að föt og skór muni hækka í verði um 4,7% ásamt því sem heimilssbúnaður og húsgögn muni hækka um 0,07% í verði. 

mbl.is