10 hlutir sem koma þér í gírinn fyrir Reykjavíkurmaraþonið

Fatastíllinn | 16. ágúst 2024

10 hlutir sem koma þér í gírinn fyrir Reykjavíkurmaraþonið

Sannkallað hlaupaæði hefur ríkt um allan heim undanfarna mánuði og hafa götur og stígar hér á Íslandi verið fullir af hlaupurum í allt sumar. Margir hafa verið á fullu í undirbúningi fyrir Reykjavíkurmaraþonið sem fer fram laugardaginn 24. ágúst, en þar eru fjórar vegalengdir í boði og fjölbreyttur hópur hlaupara sem ætlar að spreyta sig.

10 hlutir sem koma þér í gírinn fyrir Reykjavíkurmaraþonið

Fatastíllinn | 16. ágúst 2024

Á óskalista vikunnar finnur þú tíu hluti sem koma þér …
Á óskalista vikunnar finnur þú tíu hluti sem koma þér í gírinn fyrir Reykjavíkurmaraþonið! Samsett mynd

Sannkallað hlaupaæði hefur ríkt um allan heim undanfarna mánuði og hafa götur og stígar hér á Íslandi verið fullir af hlaupurum í allt sumar. Margir hafa verið á fullu í undirbúningi fyrir Reykjavíkurmaraþonið sem fer fram laugardaginn 24. ágúst, en þar eru fjórar vegalengdir í boði og fjölbreyttur hópur hlaupara sem ætlar að spreyta sig.

Sannkallað hlaupaæði hefur ríkt um allan heim undanfarna mánuði og hafa götur og stígar hér á Íslandi verið fullir af hlaupurum í allt sumar. Margir hafa verið á fullu í undirbúningi fyrir Reykjavíkurmaraþonið sem fer fram laugardaginn 24. ágúst, en þar eru fjórar vegalengdir í boði og fjölbreyttur hópur hlaupara sem ætlar að spreyta sig.

Á óskalista vikunnar finnur þú tíu hluti sem koma þér í alvöru hlaupagír og gætu hjálpað þér að komast í gegnum síðustu dagana fyrir hlaup. 

Alvöru dempun!

Ef það er eitthvað sem er ómissandi fyrir keppnishlaup þá eru það klárlega góðir hlaupaskór. Það getur verið kúnst að finna réttu hlaupaskóna, en í dag er hægt að finna skó sem eru sérstaklega hannaðir fyrir ákveðnar lengdir í keppnishlaupum. Þessir skór eru afar léttir með góðri dempun og henta sérlega vel fyrir götuhlaup, maraþon og hálft maraþon. 

Cloudmonster hlaupaskórnir frá On fást hjá Sportvörum og kosta 30.990 …
Cloudmonster hlaupaskórnir frá On fást hjá Sportvörum og kosta 30.990 krónur. Ljósmynd/Sportvorur.is

Mjúkur og þægilegur!

Þegar kemur að því að velja fatnað fyrir keppnishlaup er mikilvægt að passa að hann sé bæði léttur og þægilegur. Þessi flotti hlýrabolur frá Metta Sport tikkar í bæði boxin.

Hlýrabolur fæst hjá Metta og kostar 5.990 krónur.
Hlýrabolur fæst hjá Metta og kostar 5.990 krónur. Ljósmynd/Mettasport.is

Staðalbúnaður!

Hlaupavesti hafa notið aukinna vinsælda að undanförnu og virðast vera orðinn staðalbúnaður flestra hlaupara, enda nýtast þau afar vel – sérstaklega fyrir lengri hlaup. Það fer eftir lengd og gerð hlaupsins hvaða vesti hentar best, en þetta vesti er með tveimur vatnsbrúsum og ýmsum vösum og geymsluhólfum fyrir orkustykki- og gel, auka fatnað og fleira. 

Hlaupavesti frá Salomon fæst hjá Útilíf og kostar 18.900 krónur.
Hlaupavesti frá Salomon fæst hjá Útilíf og kostar 18.900 krónur. Ljósmynd/Salomon.com

Líka fyrir lúkkið!

Þó svo flott hlaupasólgleraugu láti mann ekki endilega hlaupa hraðar þá geta þau án efa hjálpað manni að halda kúlinu í maraþoninu. 

Hlaupasólgleraugu frá NEON fást hjá Hlaupár og kosta 22.700 krónur.
Hlaupasólgleraugu frá NEON fást hjá Hlaupár og kosta 22.700 krónur. Ljósmynd/Hlaupar.is

Ofurléttar!

Þessar stuttbuxur eru sérstaklega hannaðar fyrir keppnishlaup, en þær eru ofurléttar – aðeins 100 grömm að þyngd!

Stuttbuxur frá On fást hjá Sportvörum og kosta 10.990 krónur.
Stuttbuxur frá On fást hjá Sportvörum og kosta 10.990 krónur. Ljósmynd/On.com

Hagnýtur toppur!

Þessi hlaupatoppur frá Adidas býr yfir leyndum töfrum sem ættu að falla vel í kramið hjá hlaupurum, en auk þess að veita góðan stuðning leynast á toppnum nokkrir vasar þar sem hægt er að geyma aukahluti á borð við lykla, síma eða orkugel og -stykki.

Run Pocket-toppur fæst hjá Adidas og kostar 10.990 krónur.
Run Pocket-toppur fæst hjá Adidas og kostar 10.990 krónur. Ljósmynd/Adidas.is

Með allt á hreinu!

Þeir sem vilja vera með allt á hreinu verða eflaust hrifnir af þessu hlaupa- og heilsuúri. Það er ekki bara frábært fyrir hlaup, stutt og löng, heldur gefur það hinar ýmsu upplýsingar um svefn, endurheimt, HRV, veður, æfingar og keppnir.

Forerunner-hlaupaúrið frá Garmin fæst hjá Garminbúðinni og kostar 94.900 krónur.
Forerunner-hlaupaúrið frá Garmin fæst hjá Garminbúðinni og kostar 94.900 krónur. Ljósmynd/Garminbudin.is

Létt og góð!

Við höldum okkur við léttan og þægilegan fatnað, en hér er á ferðinni langermabolur sem auðvelt er að henda sér í ef það fer að kólna í hlaupinu – eða þá henda sér úr ef það er hlýtt!

Langermabolur frá Under Armour fæst hjá Altis og kostar 14.490 …
Langermabolur frá Under Armour fæst hjá Altis og kostar 14.490 krónur. Ljósmynd/Altis.is

Sérhönnuð fyrir keppnishlaupið!

Þessi derhúfa er lauflétt, eða aðeins 53 grömm að þyngd, og er sérstaklega hönnuð fyrir keppnishlaup. Derhúfan er gerð úr mesh-efni með góðri öndun sem varið er með sólarvörn – svo skemmir lúkkið sannarlega ekki fyrir!

Derhúfa frá Ciele Athletics fæst hjá Toppar og kostar 6.990 …
Derhúfa frá Ciele Athletics fæst hjá Toppar og kostar 6.990 krónur. Ljósmynd/Toppar.is

Fyrir kálfana!

Í hlaupum er gjarnan sérstaklega mikið álag á fæturna því algengt að hlauparar noti þrýstiklæðnað (e. compression garments), aðallega á neðri hluta líkamans. Þá virðast kálfahlífar vera sérstaklega vinsælar hér á landi, en þær eru sagðar geta aukið blóðflæði og súrefnisupptöku, dregið úr þreytu, hjálpað við að koma í veg fyrir krampa í vöðva og létt á einkennum beinhimnabólgu.

Kálfahlífar frá 2XU fást hjá Sportvörum og kosta 8.490 krónur.
Kálfahlífar frá 2XU fást hjá Sportvörum og kosta 8.490 krónur. Ljósmynd/Sportvorur.is
mbl.is