Síðastliðna helgi lauk Ólympíuleikunum í París þar sem fremsta íþróttafólk heims kepptist um að komast á vinningspall. Það fer ekki á milli mála að gríðarlega mikil vinna og þrautseigja liggja að baki verðlaunahafa og keppenda á leikunum, en gætu stjörnumerki haft eitthvað með þetta að gera?

Á síðasta ári gerði RunRepeat gagnagreiningu á um 16 þúsund Ólympíuverðlaunahöfum af 51 Ólympíuleikum, frá árinu 1896 til 2018, þar sem stjörnumerki voru meðal annars skoðuð. Þar kom í ljós að einstaklingar í stjörnumerkinu Steingeit voru langlíklegastir til að vinna verðlaun, en þeir voru með 58,6% fleiri verðlaun en samanlagt meðaltal allra annarra stjörnumerkja.
Þá hafði Steingeitin unnið til flestra gull-, silfur- og bronsverðlauna, en hún virðist þó sérlega góð í að næla sér í gullverðlaun og höfðu einstaklingar í þessu stjörnumerki unnið til 1,7 sinnum fleiri gullverðlauna en nokkurt annað stjörnumerki.
Steingeitin er þekkt fyrir að vera ákveðin með þrautseigju og því kemur það líklega fæstum stjörnumerkjaspekingum á óvart að einstaklingar í þessu stjörnumerki hafi mögulega einhverja forystu þegar kemur að því að ná árangri í keppni.
Það stjörnumerki sem hefur unnið til næstflestra verðlauna á Ólympíuleikunum er svo Vatnsberinn, en þar á eftir kemur Bogamaðurinn. Hins vegar gæti stjörnumerkið sem hefur unnið til fæstra verðlauna á Ólympíuleikunum komið einhverjum á óvart, en það er Ljónið.
Listi yfir stjörnumerki sem hafa unnið flest Ólympíuverðlaun