„Hugsanlega síðasta tækifærið“

Ísrael/Palestína | 19. ágúst 2024

„Hugsanlega síðasta tækifærið“

Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, er kominn til Ísraels þar sem hann mun funda með Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels.

„Hugsanlega síðasta tækifærið“

Ísrael/Palestína | 19. ágúst 2024

Antony Blinken er kominn til Ísraels.
Antony Blinken er kominn til Ísraels. AFP

Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, er kominn til Ísraels þar sem hann mun funda með Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels.

Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, er kominn til Ísraels þar sem hann mun funda með Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels.

Blinken segir að friðarviðræðurnar séu hugsanlega síðasta tækifærið til að koma á friði.

„Þetta er afgerandi augnablik, líklega besta og hugsanlega síðasta tækifærið til að fá gíslana heim, til að ná vopnahléi og koma öllum á betri veg í átt að friði og öryggi,“ sagði Blinken við fréttamenn en hann er á sinni níundu heimsókn til Mið-Austurlanda frá því stríð braust út milli Ísraela og Hamas.

Netanjahú hefur sakað Hamas-samtökin um að standa í vegi fyrir að samningar náist um vopnahlé en hlé var gert á friðarviðræðum í Doha í Katar á föstudaginn. Reiknað er með að þær hefjist aftur í vikunni.

„Við erum að vinna að því að tryggja að það verði engin stigmögnun, að það séu engar ögranir og það séu engar aðgerðir sem á nokkurn hátt geta fært okkur í burtu frá því að koma þessum samningi yfir strikið,“ sagði Blinken ennfremur.

mbl.is