Stórleikarinn Robert De Niro fagnaði 81 árs afmæli sínu með stæl um helgina. De Niro fagnaði enn einum hring í kringum sólina með því að stökkva í sjóinn.

Dóttir leikarans, Drena De Niro, náði atvikinu á upptöku og deildi því á samfélagsmiðlasíðunni Instagram. Af myndskeiðinu að dæma er aldurinn ekki farinn að segja til sín en leikarinn virðist vera í hörkuformi.
De Niro er sjö barna faðir. Hann eignaðist sjöunda barn sitt, stúlku sem hlaut nafnið Gia Virgina, í apríl á síðasta ári. Leikarinn viðurkenndi í viðtali við breska fjölmiðilinn The Guardian að barnauppeldið væri erfiðara á hans aldri en hann sagði stúlkuna halda sér ungum.