Marga ferðalanga dreymir um að sjá hval með berum augum í Íslandsferð sinni. Ljósmyndarinn Alina Rudya var hins vegar ekki að búast við því að fá drauminn uppfylltan þegar hún heimsótti Reynisfjöru í Mýrdal þann 12. ágúst síðastliðinn, ekki frekar en aðrir ferðalangar sem stóðu agndofa á ströndinni og fylgdust með hnúfubak synda meðfram ströndinni.

Rudya birti myndskeið af atvikinu á TikTok-reikningi sínum og hefur það hlotið þó nokkra athygli. „Sjónarhorn: Þú heimsækir hina frægu svörtu strönd Íslands og hnúfubakur lætur óvænt sjá sig,“ skrifaði hún við myndbandið.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem hnúfubakur lætur sjá sig í Reynisfjöru, en hvalina má sjá allt í kringum Ísland, þá sérstaklega á sumrin. Hnúfubakar eru sagðir félagslyndar verur sem hræðast ekki fólk, en Edda Elísabet Magnúsdóttir, lektor í líffræði við Háskóla Íslands og hvalasérfræðingur, ræddi um hvalategundina í samtali við mbl.is í sumar þegar um tíu hnúfubakar spókuðu sig við höfnina í Borgarfirði eystri.
„Þetta er ekkert alóvanalegt en þetta er eina stórhvalategundin, hér í þessum hluta heimsins getum við sagt eða allavega í kringum Ísland, sem á það til að koma inn í miklar grynningar ef það er einhverja girnilega fæðu að hafa,“ sagði Edda.
Þá eru á bilinu 11.000 til 15.000 hnúfubakar sem halda sig við Íslandsstrendur og teygja sig til Grænlands og Færeyja, en að sögn Eddu virðist sem svo að stofninn sé stöðugur.