Þessi eldunaraðferð á hvítlauk er tær snilld en Hanna Thordarson, keramiker og ástríðukokkur, bakar hvítlaukinn í lokuðu íláti í ofni. Ílátið sem hún notar kallar hún pottaling en það er pottur sem hún hannaði og gerði sjálf. Aðferðina við eldunina þróaði hún því það eru ekki allir í fjölskyldu hennar sem líka við hvítlaukinn, finnst hann bæði vera of bragðsterkur og illa lyktandi.

„Þá er þessi leið kærkomin til að milda hann, með því að baka hann í ofni í lokuðu íláti og þá kemur pottalingurinn sterkur inn. Þegar hvítlaukurinn hefur bakast í ofninum verður hann bæði mjúkur og mildur. Hægt er að nota hann í ýmsa matargerð eða ofan á brauð. Slurkur af bökuðum hvítlauk gerir margan mat betri, möguleikarnir eru endalausir og frábært að eiga smá gums í kælinum,“ segir Hanna með bros á vör.
Hanna segist geta notað hvítlaukinn í fjölmarga rétti, meðal annars á pítsuna, í pastað, í hvítlauksolíuna, í ídýfuna svo fátt sé nefnt. Svo er hvítlaukurinn afar góður til að njóta þegar fólk finnur fyrir kvefi eða líður eins og það sé að fá flensu. „Ég gef mínu fólki iðulega hvítlauk þegar það er með kverkaskít og það svínvirkar.“
Þá er ráð að fá sér hvítlauk og baka hann með þessum hætti og bera hann fram með því sem hugurinn girnist.
Bakaður hvítlaukur
Aðferð: