Svandís: Sáttmálinn „lifandi reikningsdæmi“

Svandís: Sáttmálinn „lifandi reikningsdæmi“

Svandís Svavarsdóttir innviðaráðherra segir nýjan samgöngusáttmála mikilvægan áfanga fyrir samgöngur á höfuðborgarsvæðinu. Hún talar um sáttmálann sem „lifandi reikningsdæmi“ en enn á eftir að útfæra ýmis atriði varðandi fjármögnun hans. 

Svandís: Sáttmálinn „lifandi reikningsdæmi“

Samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins | 21. ágúst 2024

Svandís Svavarsdóttir innviðaráðherra á fundinum í dag.
Svandís Svavarsdóttir innviðaráðherra á fundinum í dag. mbl.is/Eyþór

Svandís Svavars­dótt­ir innviðaráðherra seg­ir nýj­an sam­göngusátt­mála mik­il­væg­an áfanga fyr­ir sam­göng­ur á höfuðborg­ar­svæðinu. Hún tal­ar um sátt­mál­ann sem „lif­andi reikn­ings­dæmi“ en enn á eft­ir að út­færa ýmis atriði varðandi fjár­mögn­un hans. 

Svandís Svavars­dótt­ir innviðaráðherra seg­ir nýj­an sam­göngusátt­mála mik­il­væg­an áfanga fyr­ir sam­göng­ur á höfuðborg­ar­svæðinu. Hún tal­ar um sátt­mál­ann sem „lif­andi reikn­ings­dæmi“ en enn á eft­ir að út­færa ýmis atriði varðandi fjár­mögn­un hans. 

„Þetta er nátt­úru­lega bara mjög dýr­mæt­ur og mik­il­væg­ur áfangi fyr­ir sam­göng­ur hér á höfuðborg­ar­svæðinu en líka bara fyr­ir framtíðar­sýn upp­bygg­ing­ar sam­fé­lags­ins.

Það hvernig stjórn­völd stilla sam­an strengi, ríkið og sveit­ar­fé­lög­in hérna á höfuðborg­ar­svæðinu sam­ein­ast um framtíðar­sýn sem nær út fyr­ir kjör­tíma­bil og út fyr­ir flokkslín­ur með sam­göngusátt­mál­an­um er nátt­úru­lega bara stór­kost­legt,“ sagði Svandís við blaðamann mbl.is að lokn­um kynn­ing­ar­fundi á sátt­mál­an­um fyrr í dag.

Á eft­ir að hnýta lausa enda

Gert er ráð fyr­ir að kostnaður við sátt­mál­ann verði um 311 millj­arðar en á kynn­ing­ar­fund­in­um kom fram að ríkið muni fjár­magna hann að hluta með sölu á Keldna­landi og með tekj­um af um­ferð.

Spurð hvernig tekj­urn­ar af um­ferð verði rukkaðar seg­ir Svandís: 

„Það er bara hluti af því sem mun vera út­fært eft­ir því sem líður á sátt­mál­ann. Það er ekki búið að hnýta þarna alla lausa enda. Við erum búin að raða fram­kvæmd­un­um í til­tekna tímaröð og það eru ýmis mál sem á síðan eft­ir að út­færa varðandi fjár­mögn­un­ina.“

Ýmsar breyti­leg­ar for­send­ur

Í kynn­ing­unni á sátt­mál­an­um kom sömu­leiðis fram að sett verði á lagg­irn­ar sam­eig­in­legt rekstr­ar­fé­lagi fyr­ir rekst­ur al­menn­ings­sam­ganga á höfuðborg­ar­svæðinu, en ríkið mun fjár­magna rekst­ur þess um þriðjung meðan sveit­ar­fé­lög­in sex munu greiða tvo þriðju hluta rekst­urs­ins.

Spurð hvort það liggi fyr­ir hvað þetta muni kosta ríkið seg­ir Svandís:

„Það er bara verið að vinna með til­tekið hlut­fall og það er bara inn­siglað í samn­ingn­um og und­ir­ritað í dag. Síðan er það að koma því sam­komu­lagi til fram­kvæmd­ar. Þetta er auðvitað gríðarlega mik­il­vægt skref að ríkið stígi með þess­um hætti beint inn í rekst­ur al­menn­ings­sam­ganga á höfuðborg­ar­svæðinu um leið og við erum líka að leggja til fjár­magn til orku­skipta í al­menn­ings­sam­göng­um.“

Þannig það kem­ur bara í ljós þegar þetta fer á stað hver kostnaður­inn verður?

„Já, þetta er allt sam­an lif­andi reikn­ings­dæmi því að það eru ýms­ar for­send­ur sem eru breyti­leg­ar og svo auðvitað þegar að flot­inn fær­ist í annað eldsneyti hef­ur það líka áhrif.“

mbl.is