Dóra Dúna og Guðlaug giftu sig í annað sinn

Instagram | 22. ágúst 2024

Ljósmyndarinn Dóra Dúna Sighvatsdóttir gekk að eiga eiginkonu sína, Guðlaugu Helgu Björnsdóttir, í annað sinn nú á dögunum. Hjónin giftu sig við lágstemmda athöfn í Fríkirkjunni í Reykjavík í fyrrasumar og tilkynntu þá að þau myndu halda alvöru veislu síðar.

Ástin var í loftinu á þessum bjarta og fallega degi.
Ástin var í loftinu á þessum bjarta og fallega degi. Samsett mynd

Ljósmyndarinn Dóra Dúna Sighvatsdóttir gekk að eiga eiginkonu sína, Guðlaugu Helgu Björnsdóttir, í annað sinn nú á dögunum. Hjónin giftu sig við lágstemmda athöfn í Fríkirkjunni í Reykjavík í fyrrasumar og tilkynntu þá að þau myndu halda alvöru veislu síðar.

Ljósmyndarinn Dóra Dúna Sighvatsdóttir gekk að eiga eiginkonu sína, Guðlaugu Helgu Björnsdóttir, í annað sinn nú á dögunum. Hjónin giftu sig við lágstemmda athöfn í Fríkirkjunni í Reykjavík í fyrrasumar og tilkynntu þá að þau myndu halda alvöru veislu síðar.

Dóra Dúna og Guðlaug stóðu aldeilis við það loforð og buðu til glæsilegrar veislu á Marbella á Spáni.

Athöfnin sjálf var öll hin glæsilegasta og engu til sparað. Jakob Frímann Magnússon, tónlistarmaður og tónskáld, gaf hjónin saman og tók síðan lagið með Helga Björnssyni og Elínu Eyþórsdóttur.

Fjöldi vina og vandamanna fylgdist með hjónunum gifta sig og hafa margir deilt skemmtilegum myndum og myndskeiðum frá deginum á Instagram Story. 

Smartland óskar Dóru Dúnu og Guðlaugu hjartanlega til hamingju!

mbl.is