Einhverjir muna eflaust eftir Polly Pocket-leikföngunum sem slógu rækilega í gegn í kringum aldamótin. Nú geta þeir upplifað alvöru nostalgíukast og bókað gistingu í risavöxnu dúkkuhúsi í anda Polly Pocket.

Húsið, sem er í borginni Littleton í Massachusetts í Bandaríkjunum, er nýjasta viðbótin á bókunarvef Airbnb og var hannað í tilefni af 35 ára afmæli Polly Pocket.
Húsið hentar vel til veisluhalda og býður upp á alvöru Polly Pocket-upplifun. Í fataskáp hússins hanga dúkkuföt í raunstærð sem gestir geta mátað, en fötin eru nauðalík frægu gúmmífötunum sem Polly Pocket-dúkkurnar voru klæddar í.
Þegar gestir hafa mátað öll fötin og fylgihlutina í fataskápunum er svo tilvalið að fara upp á aðra hæð hússins og prufa snyrtiaðstöðuna sem er hlaðin litríkum snyrtivörum.
Síðan er ómissandi að næla sér í ferskan drykk í dúkkubolla áður en gengið er út í garð þar sem meðal annars má finna útilegutjald sem gestirnir gista svo í eftir ógleymanlegt nostalgíupartí. Airbnb mun opna fyrir bókanir 21. ágúst næstkomandi.