Engin sjáanleg hreyfing við Grindavíkurveg

Eldvirkni á Reykjanesskaga | 23. ágúst 2024

Sigríður Magnea Óskarsdóttir, náttúruvársérfræðingur segir gosvirkni hafa haldist svipaða í kvöld. Frekar stöðugur kraftur sé í gosinu.

Frá gosinu í gærnótt.
Frá gosinu í gærnótt. mbl.is/Eyþór

Sigríður Magnea Óskarsdóttir, náttúruvársérfræðingur segir gosvirkni hafa haldist svipaða í kvöld. Frekar stöðugur kraftur sé í gosinu.

Sigríður Magnea Óskarsdóttir, náttúruvársérfræðingur segir gosvirkni hafa haldist svipaða í kvöld. Frekar stöðugur kraftur sé í gosinu.

„Það streymir til norðvesturs og er einangrað á þessum tveimur sprungum,“ segir Sigríður í samtali við mbl.is. 

Ekki frekari gufusprengingar

Ekki sé að sjá neina hreyfingu við Grindavíkurveg. Skyggni sé að vísu örlítið lélegt enda hraunið að kælast og mikil gufa sem fylgi því. 

„En það á að lægja í nótt þá sést það betur,“ segir Sigríður.

Hún kveðst ekki hafa orðið var við frekari gufusprengingar líkt og urðu fyrr í dag er hraun komst í snertingu við grunnvatn.

„Svo náttúrulega klárast grunnvatnið svo það er ekkert til þess að tæta,“ segir Sigríður.

mbl.is