Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum hafa ákveðið að færa almannavarnastig af neyðarstigi á hættustig vegna eldgossins sem hófst í gærkvöldi á Reykjanesi.

„Eldgosið sem hófst á tíunda tímanum í gærkvöldi óx jafnt og þétt fyrstu klukkutímana og var heildarlengd gossprungunnar um sjö kílómetrar þegar hún var sem lengst. Gossprungan var þó ekki á neinum tímapunkti öll virk í einu. Í samanburði við síðustu eldgos á svæðinu þá er virknin mun norðar en áður,“ segir í tilkynningu frá almannavörnum.
Þá segir, að þessi ákvörðun dragi ekki úr viðbúnaði viðbragðsaðila og almannavarna í tengslum við aðgerðir vegna eldgossins.