Útvarpsmaðurinn og TikTok-stjarnan Ólafur Jóhann Steinsson, betur þekktur sem Óli á hjóli, og kærasta hans, Sigurlaug Birna Garðarsdóttir, voru glæsileg í sveitabrúðkaupi í Nashville í Tennessee í Bandaríkjunum um helgina.

Parið fagnaði ástinni bæði klædd í hvítum dressum en þau hafa verið saman í um fjögur ár.
Ólafur og Sigurlaug eru mikið ævintýrafólk en saman hafa þau meðal annars ferðast til Dubaí, Bandaríkjanna, Englands, Spánar og Svíþjóðar.
Ólafur hefur undanfarið slegið í gegn á samfélagsmiðlinum TikTok þar sem hann spyr ferðamenn hér á landi og út í heimi um Ísland. Einnig hefur hann komist í erlenda fréttamiðla, þá aðallega í Gvatemala og Kanada.