Hollywood-stjörnurnar Meryl Streep og Martin Short gengu hönd í hönd niður rauða dregilinn á frumsýningu nýjustu þáttaraðar Only Murders in the Building í Los Angeles á fimmtudag. Kynti það verulega undir orðróm um meint ástarsamband leikaranna sem hefur sveimað yfir Hollywood-hæðum síðustu vikur og mánuði.

Parið brosti sínu breiðasta á rauða dreglinum og stillti sér upp fyrir myndatöku ásamt meðleikurum sínum Steve Martin og Selenu Gomez.
Streep og Short, sem fara með hlutverk elskenda í gamanþáttaröðinni, mættu einnig hönd í hönd í eftirpartíið hjá Paramount og létu, að sögn sjónarvotta, mjög vel að hvort öðru allt kvöldið.
Short fullyrti í viðtali við Bill Maher í janúar að orðrómur um nýfundna ást hans og stórleikkonunnar Meryl Streep væri ekkert annað en uppspuni. En einungis örfáum vikum seinna sást til parsins njóta kvöldverðar á hinum sögufræga veitingastað Giorgio Baldi í Santa Monica og einnig á söngleiknum Merrily We Roll Along í New York-borg.