Íris Svava Pálmadóttir, þroskaþjálfi og talsmaður jákvæðrar líkamsímyndar, og sambýlismaður hennar, Arnþór Fjalarson, gáfu dóttur sinni nafn á sunnudag.

Stúlkan kom í heiminn þann 3. maí síðastliðinn og er fyrsta barn parsins. Hún hlaut nafnið Sóldís Hanna.
Íris Svava greindi frá nafngiftinni á Instagram-síðu sinni í gærdag og birti nokkrar myndir frá skírnardeginum.
„Besti sólargeislinn okkar var skírð í dag og fékk nafnið Sóldís Hanna Arnþórsdóttir,” skrifaði Íris Svava við færsluna.
Fjölskylduvefur mbl.is óskar fjölskyldunni hjartanlega til hamingju!