Katrín prinsessa af Wales var viðstödd sunnudagsmessu í Skotlandi í gærdag. Hún var mynduð fyrir utan Crathie Kirk-kirkjuna í skoska smáþorpinu Crathie ásamt Vilhjálmi Bretaprins og elsta barni hjónanna, Georg Bretaprins.

Katrín leit hraustlega út og brosti til viðstaddra. Hún var afar glæsileg í mynstraðri kápu og með ullarhatt á höfði.
Lítið hefur sést til Katrínar síðastliðna mánuði sökum krabbameinsmeðferðar. Hún kom opinberlega fram í fyrsta sinn um miðjan júní er hún fylgdist með Trooping of Colour-skrúðgöngunni ásamt börnum sínum. Hún var einnig meðal áhorfenda á úrslitaleik Wimbledon-mótsins í júlí.
Katrín fór í aðgerð á kviðarholi í byrjun árs og greindist með krabbamein stuttu síðar. Ekki hefur verið gefið upp hvers kyns krabbamein hún sé með en Katrín er sögð hafa brugðist vel við krabbameinsmeðferð.