Vill setja meiri peninga í markaðssetningu

Ferðamenn á Íslandi | 26. ágúst 2024

Vill setja meiri peninga í markaðssetningu

Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra er vongóð um að fjármagn fáist til að leggjast í neytendamarkaðssetningu á Íslandi til erlendra ferðamanna.

Vill setja meiri peninga í markaðssetningu

Ferðamenn á Íslandi | 26. ágúst 2024

Hluti neytendamarkaðssetningar myndi snúa að upplýsingamiðlun vegna jarðhræringanna.
Hluti neytendamarkaðssetningar myndi snúa að upplýsingamiðlun vegna jarðhræringanna. mbl.is/Ólafur Árdal

Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra er vongóð um að fjármagn fáist til að leggjast í neytendamarkaðssetningu á Íslandi til erlendra ferðamanna.

Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra er vongóð um að fjármagn fáist til að leggjast í neytendamarkaðssetningu á Íslandi til erlendra ferðamanna.

Um þessar mundir er verið að leggja lokahönd á vinnu tengda verkefninu innan ráðuneytis Lilju og fjármálaráðuneytisins en gert er ráð fyrir að lokaákvörðun verði tekin um málið á næstu vikum. Formaður Samtaka ferðaþjónustunnar, SAF, segir neytendamarkaðssetningu á borð við þá sem Lilja talar um nauðsynlega.

„Við fengum samþykkta ferðamálastefnu á vorþingi sem er mjög umfangsmikil og búið að vera að vinna að síðustu tvö árin en ein lykilstoðin að því að Ísland verði kynnt með reglubundum hætti er heilsársneytendamarkaðssetning í takt við það sem Noregur, Nýja-Sjáland og fleiri ríki eru að gera.

Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag. 

mbl.is