Sunna Rún og Emil Páls orðin hjón

Brúðkaup | 27. ágúst 2024

Sunna Rún og Emil Páls orðin hjón

Sunna Rún Heiðarsdóttir læknir og Emil Pálsson, fyrrverandi knattspyrnumaður, eru orðin hjón. Þau fögnuðu því með sínum allra nánustu í gær, mánudag, þar sem þau buðu upp á glæsilega köku og búbblur með því. 

Sunna Rún og Emil Páls orðin hjón

Brúðkaup | 27. ágúst 2024

Sunna Rún Heiðarsdóttir og Emil Pálsson eru orðin hjón.
Sunna Rún Heiðarsdóttir og Emil Pálsson eru orðin hjón. Skjáskot/Instagram

Sunna Rún Heiðarsdóttir læknir og Emil Pálsson, fyrrverandi knattspyrnumaður, eru orðin hjón. Þau fögnuðu því með sínum allra nánustu í gær, mánudag, þar sem þau buðu upp á glæsilega köku og búbblur með því. 

Sunna Rún Heiðarsdóttir læknir og Emil Pálsson, fyrrverandi knattspyrnumaður, eru orðin hjón. Þau fögnuðu því með sínum allra nánustu í gær, mánudag, þar sem þau buðu upp á glæsilega köku og búbblur með því. 

Sunna deildi gleðifregnunum með fylgjendum sínum á Instagram. „Þá er það lögfest. Við Emil erum ekkert fyrir það að bíða með hlutina,“ skrifaði hún við fallega mynd af nýgiftu hjónunum. 

Sunna og Emil opinberuðu samband sitt sumarið 2022. Ári síðar eignuðust þau sitt fyrsta barn saman, soninn Óliver Emilsson, sem kom í heiminn 23. júní 2023. 

View this post on Instagram

A post shared by Sunna Rún (@sunnarun_)

Lagði fótboltaskóna á hilluna eftir hjartastopp

Í ágúst 2022 greindi Emil frá því að hann hefði lagt fót­bolta­skóna á hill­una eft­ir að hafa tvisvar farið í hjarta­stopp, ann­ars veg­ar í leik með Sogn­dal í Nor­egi og hins veg­ar á æf­ingu með FH.

Emil hélt út í at­vinnu­mennsku árið 2017 og spilaði með Sand­efjord, Sogn­dal og Sarps­borg í Nor­egi. Þá lék hann einn A-lands­leik gegn Sam­einuðu ar­ab­ísku fursta­dæmun­um árið 2016 og á að baki 123 leiki í efstu deild hér á landi. 

Smartland óskar þeim innilega til hamingju með ástina!

mbl.is