Magnús Geir Þórðarson Þjóðleikhússtjóri og eiginkona hans, Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir, stjórnandi rekstrarráðgafar Expectus, fögnuðu átta ára brúðkaupsafmæli sínu í gær, þriðjudag. Áttunda árið er bronsbrúðkaup og táknar það styrk og stöðugleika.

Magnús Geir birti fallega færslu á Facebook-síðu sinni í tilefni dagsins og deildi fallegri mynd frá brúðkaupsdeginum.
„All you need is love...
Átta ár frá frábærum degi - bronsbrúðkaup.
Hver dagur er öðrum betri með elsku Ingu minni og ég er heppnasti maður í heimi...og fjörið heldur áfram, börnin stækka og stuðið eykst. Lífið er gott og framtíðin er björt,“ skrifaði Magnús Geir við færsluna.
Magnús Geir og Ingibjörg Ösp giftu sig á fallegum sumardegi árið 2016. Athöfnin fór fram í Dómkirkjunni og voru brúðhjónin gefin saman af Guðna Má Harðarsyni. Eftir athöfnina buðu þau til veislu í Borgarleikhúsinu. Magnús Geir var Borgarleikhússtjóri á árunum 2008 til 2014.
Smartland óskar hjónunum hjartanlega til hamingju með brúðkaupsafmælið!