Hefur fundið ástina að nýju eftir fráfall Boss

Ást í Hollywood | 29. ágúst 2024

Allison Holker, dansstjarna og einn af dómurunum í bandaríska hæfileikaþættinum So You Think You Can Dance, hefur fundið ástina á ný. Hún missti eiginmann sinn, dansarann Stephen „tWitch“ Boss, í desember 2022. Dansarinn féll fyrir eigin hendi eftir mikla baráttu við þunglyndi.

Allison Holker greindi frá nýju sambandi á Instagram.
Allison Holker greindi frá nýju sambandi á Instagram. Samsett mynd

Allison Holker, dansstjarna og einn af dómurunum í bandaríska hæfileikaþættinum So You Think You Can Dance, hefur fundið ástina á ný. Hún missti eiginmann sinn, dansarann Stephen „tWitch“ Boss, í desember 2022. Dansarinn féll fyrir eigin hendi eftir mikla baráttu við þunglyndi.

Allison Holker, dansstjarna og einn af dómurunum í bandaríska hæfileikaþættinum So You Think You Can Dance, hefur fundið ástina á ný. Hún missti eiginmann sinn, dansarann Stephen „tWitch“ Boss, í desember 2022. Dansarinn féll fyrir eigin hendi eftir mikla baráttu við þunglyndi.

Holker greindi frá nýja sambandinu á Instagram-síðu sinni í gærdag. Hún birti mynd af skuggamynd sem sýnir hana leiða mann. Holker gaf ekki upp nafn mannsins en birti mynd af rauðu hjarta við færsluna.

Fjöldinn allur af fólki óskaði Holker hjartanlega til hamingju með ástina í athugasemdakerfi Instagram. 

Holker og Boss gengu í hjónaband árið 2013 og áttu saman þrjú börn en Boss ættleiddi elstu dóttur Holker. 

Boss var án efa þekkt­ast­ur fyr­ir hlut­verk sitt sem plötu­snúður og al­hliða skemmtikraft­ur í The Ell­en De­Gen­eres Show. Hol­ker og Boss heilluðu einnig net­verja með mynd­bönd­um sín­um á In­sta­gram en þau dönsuðu sam­an í gegn­um súrt, sætt, meðgöng­ur, kór­ónu­veiruna og fleira.

mbl.is