Bandaríska dragdrottningin Detox, sem gerði garðinn frægan í raunveruleikaþættinum RuPaul's Drag Race, kom út úr skápnum sem trans kona á uppistandi í Chicago nú á dögunum.

Detox opinberaði tíðindin í miðjum lagaflutningi og uppskar mikil fagnaðarlæti frá áhorfendum í kjölfarið.
Upptaka frá uppistandinu hefur farið eins og eldur í sinu um samfélagsmiðilinn TikTok og hafa margir óskað dragdrottningunni hjartanlega til hamingju.
Detox var þátttakandi í fimmtu þáttaröð af RuPaul's Drag Race árið 2013 og lenti í fjórða sæti. Hún tók einnig þátt í RuPaul's Drag Race All Stars örfáum árum síðar og endaði þá í öðru sæti.
Dragdrottningin vakti mikla athygli í þáttunum fyrir frumlega búninga, örugga framkomu og beittan og ögrandi húmor.