Norska prinsessan Marta Lovísa gekk að eiga hinn bandaríska Durek Verrett í dag. Hátíðarhöldin hófust á fimmtudaginn og eru gestir allt frá kóngafólki til raunveruleikastjarna.
Norska prinsessan Marta Lovísa gekk að eiga hinn bandaríska Durek Verrett í dag. Hátíðarhöldin hófust á fimmtudaginn og eru gestir allt frá kóngafólki til raunveruleikastjarna.
Norska prinsessan Marta Lovísa gekk að eiga hinn bandaríska Durek Verrett í dag. Hátíðarhöldin hófust á fimmtudaginn og eru gestir allt frá kóngafólki til raunveruleikastjarna.
Prinsessan er sjálf 52 ára gömul, fráskilin þriggja barna móðir en Verrett er 49 ára sjálfsyfirlýstur seiðmaður (shaman).
Verrett hefur sætt mikilli gagnrýni í fjölmiðlum frá því að hann og Marta Lovísa tóku saman en honum hefur víða verið lýst sem svindlara og samsæriskenningamanni.
Hefur Verrett m.a. varpað fram kenningum um að illir andar geti valdið kynsjúkdómum og að þunglynd börn geti gefið sjálfum sér krabbamein. Hefur Verrett sömuleiðis fullyrt að hann sé dæmdur glæpamaður og hafi risið upp frá dauðum.
Marta Lovísa hefur sjálf ekki sloppið við gagnrýni norsku þjóðarinnar og fjölmiðla vegna trúar sinnar og iðkunar á óhefðbundnum meðferðum. Árið 2007 tilkynnti hún þjóðinni að hún væri skyggn og rak skóla fram til ársins 2018 þar sem hún kenndi nemendum sínum að skapa kraftaverk og að tala við engla.
„Ég hef hlotið mikla gagnrýni í gegnum árin, vegna þess að ég er „spiritúal“ og í Noregi er það tabú,“ sagði prinsessan í viðtali við BBC í fyrra.
Var hún svipt réttinum til að vera kölluð „yðar hátign“ árið 2002 til að geta stofnað sitt eigið fyrirtæki, en fékk þó að halda prinsessutitlinum.
Í dag vill meira en 54,4% norsku þjóðarinnar að prinsessan verði svipt prinsessutitlinum.
Þetta eru ansi hörð skilaboð frá þjóðinni í ljósi vinsælda Mörtu í gegnum tíðina, en hún var raunar svo vinsæl um tíma að uppi voru umræður um hvort hún ætti að erfa krúnuna í stað bróður síns.
Marta Lovísa er elsta barn konungsins og drottningarinnar en lög í Noregi þegar hún fæddist árið 1971 kváðu á um að elsti sonur konungshjónana skyldi erfa krúnuna. Þeim hefur nú verið breytt fyrir erfingja sem fæðast eftir að nýju lögin voru sett svo Hákon bróðir Mörtu mun að óbreyttu erfa krúnuna.
Var titill Mörtu sérstaklega til umræðu árið 2022 þegar hún og Verrett notuðu titilinn í kynningarherferð fyrir bók Verrett. Herferðin var titluð „Prinsessan og Shamaninn“ en Marta náði að semja við konungshúsið um að halda titlinum gegn því að nota hann ekki í auglýsingarskyni aftur.
Hafa að nýju skapast umræður um titil prinsessunnar í ljósi þess að hún og Verrett hafa selt ljósmyndaréttindin að brúðkaupinu til slúðurblaðsins Hello!, en vaninn er að fjölmiðlar landsins fái að mynda konungleg brúðkaup.
Virðast umræðurnar hafa náð inn fyrir hallarveggina og hefur krónprinsinn, bróðir Mörtu, sagt að endurskoða þurfi samninginn milli prinsessunnar og konungshússins að brúðkaupinu loknu. Mun því liggja fyrir á næstunni hvort prinsessan sé enn á ný stikkfrí – eða verði endanlega svipt titlinum.