Haustin eru tíminn til að brydda upp á nýjungum og fitja upp á einhverju nýju. Ef þig vantar eitthvað nýtt á prjónana þá gæti Krílagalli Hjelmås og Steinsland hugsanlega verið eitthvað fyrir þig. Uppskriftina af Krílagallanum er að finna í nýútkominni prjónabók Hjelmås og Stansland sem voru að gefa frá sér prjónabókina Ljúflingar, uppáhaldsföt á yngstu börnin. Bókaútgáfan Forlagið gaf leyfi fyrir birtingu uppskriftarinnar.

Í bókinni er að finna 70 prjónauppskriftir af fallegum prjónaflíkum á börn frá fæðingu til fögurra ára. Stöllurnar standa að Klompe-LOMPE sem er vefsíða og netverslun og hafa þær notið mikilla vinsælda í Noregi og reyndar út um allan heim.
„Við erum ánægðar með Krílahönnunina og höfum lengi ætlað að gera þunnan galla með fallegum laska. Útkoman er sætur galli sem er fullkominn fyrir lúr í vagninum eða innan undir regngallann í leikskólanum,“ segja þær stöllur.
STIG 2
MÁL
Gallinn er prjónaður fram og til baka á hringprjón, ofan frá og niður.
Byrjið á munstri (1. umf) og aukið út fyrir laska þannig:
Annað er prj með sléttprjóni (S á réttu, B á röngu) fyrir utan listana að framan sem prj eru með garðaprjóni.
Hnappagöt eru gerð með 4,5 cm millibili. Alls eru þau (5) 6 (6) 8 (8) 9 og eru prj þannig: 1 S, 2 S saman, sláið upp á prjóninn, 2 S.
Endurt aukningu á laska alls (16) 17 (19) 21 (23) 25 sinnum.
Næsta umf (rétta): Prj fram yfir miðjulykkju í munstri, setjið ermalykkjur á aukaprjón (5 seinni munsturlykkjurnar meðtaldar), fitjið upp 4 L, prj bakstykkið og laskalykkjurnar 2 á baki, setjið ermalykkjur (þar meðtaldar 5 fyrri munsturlykkjurnar) á aukaprjón, fitjið upp 4 L og prj út umf = (127) 131 (145) 157 (165) 177 L á prjóninum.
Prj slétt (með görðum á listunum) þar til stykkið mælist (27) 30 (34) 37 (40) 42 cm.
Leggið hnappagatalistann yfir tölulistann og prj lykkjurnar saman með því að prj 1 L af fremri prjóni og 1 L af aftari prjóni S saman.
Héðan í frá er prj í hring. Prj 1 umf S.
Lengið bakstykkið þannig: Setjið merki í lykkjuna sem er á miðju baki en þar er miðjan þegar styttar umf eru prj. Prj að miðju baki á gallanum.
SKÁLMAR
ERMAR