Valli flatbaka „rændi“ sinni heittelskuðu

Instagram | 2. september 2024

Camilla Rut Rúnarsdóttir, áhrifavaldur og athafnakona, fagnar þrítugsafmæli sínu í dag, mánudag. Hún birti skemmtilega færslu á Instagram-síðu sinni í morgunsárið í tilefni af stórafmælinu og gaf innsýn í afmælishöld helgarinnar.

Camilla Rut er þrítug í dag!
Camilla Rut er þrítug í dag! Samsett mynd

Camilla Rut Rúnarsdóttir, áhrifavaldur og athafnakona, fagnar þrítugsafmæli sínu í dag, mánudag. Hún birti skemmtilega færslu á Instagram-síðu sinni í morgunsárið í tilefni af stórafmælinu og gaf innsýn í afmælishöld helgarinnar.

Camilla Rut Rúnarsdóttir, áhrifavaldur og athafnakona, fagnar þrítugsafmæli sínu í dag, mánudag. Hún birti skemmtilega færslu á Instagram-síðu sinni í morgunsárið í tilefni af stórafmælinu og gaf innsýn í afmælishöld helgarinnar.

Unnusti Camillu Rutar, Valgeir Gunnlaugsson, jafnan kallaður Valli flatbaka, kom sinni heittelskuðu heldur betur á óvart með ferð norður í land.

„Þrítug! 

Mér var rænt í óvissuferð um helgina í boði ástmannsins sem plottaði og planaði með landsliðinu af vinum okkar og fjölskyldu.

Akureyri og hundarnir sem endaði svo í sörpræs veislu í forstofunni heima. Takk fyrir mig elsku besta fólkið mitt.

Næsti tugur tekur því vel á móti mér, megi hamingjan, heilsan & gleðin lifa endalaust áfram,“ skrifaði Camilla Rut meðal annars við myndaseríuna. 

View this post on Instagram

A post shared by Camilla Rut (@camillarut)

mbl.is