Sólveig Eiríksdóttir alla jafna kölluð Solla Eiríks og dóttir hennar Hildur Ársælsdóttir eru komnar í haustgírinn og er byrjaðar að njóta uppskerunnar í matargerðina og baksturinn. Þær eru líka byrjaðar að undirbúa næstu námskeið sem er framhald á því sem þær buðu upp á síðastliðinn vetur og sló rækilega í gegn. Haustið er svo sannarlega þeirra tími og gaman að sjá hvernig mæðgurnar blómstra saman í eldhúsinu og í garðinum þessa dagana.

„Haustið er minn uppáhalds tími. Þá svigna hillurnar í búðunum af íslensku grænmeti. Mér finnst ekkert jafnast á við nýupptekið grænmeti, bragðið er alveg himneskt og það hreinlega bráðnar upp í manni. Það þarf varla krydd, kannski bara smá salt, svo bragðmikið er það. Og í algjöru uppáhaldi er grænmetið úr garðinum mínum. Ég veit ekkert betra en að fara út í garð, ná mér í grænmeti og skella því beint á pönnuna, ofninn eða bara njóta þess að borða það hrátt,“ segir Solla brosandi.
„Hér eru 2 nýjar uppskriftir sem við Hildur dóttir mín vorum að setja saman með grænmeti og berjum úr garðinum. Þessa dagana erum við mæðgurnar að undirbúa Meira Grænt námskeiðin okkar þar sem við kennum einfaldar leiðir til að elda og borða meira grænt. Hér á landi hefðum við flest gott af að borða meira af grænmeti og okkur finnst svo gaman að veita innblástur til þess í gegnum bragðlaukana, enda getur grænmeti verið svo dásamlega gott. Hvert námskeið er ein kvöldstund og það er alltaf svo góð stemning hjá okkur, svo við hlökkum heldur betur til að fara aftur af stað. Nánari upplýsingar um skráningu á námskeiðin má sjá á Instagramsíðu þeirra hér og á Facebook hér.
Fyrir áhugasaman þá er innifalið rafrænt uppskriftahefti frá mæðgunum, sýnikennsla og góður matur. Þetta er eins og að mæta í matarboð og fá góða fræðslu um matinn um leið og verið er að njóta hans. Næstu námskeið hjá mæðgunum verða núna í september og október eða 23. -24. og 30. september og síðan er eitt þann 1. október og byrja námskeiðin ávallt klukkan 17:30 og standa til klukkan 21:30.
Réttirnir sem mæðgurnar gerðu sérstaklega fyrir lesendur Matarvefsins eru annars vegar brokkolí og fleira úr garðinum hennar Sollu ásamt ostasósu. En þessi réttur er fullkominn sem forréttur eða meðlæti með aðalrétt. Síðan er það þessi dásamlega rifsberjakaka sem er bæði góð sem eftirréttur eða með kaffinu í góðum félagsskap.
Brokkolí og fleira úr garðinum með ostasósu og rifsberjakaka
Brokkolí og fleira úr garðinum með ostasósu
Fyrir 4
Aðferð:
Ostasósa
Aðferð:
Rifsberjakaka
Ofan á:
Aðferð: