Helga Þórisdóttir, forstjóri Persónuverndar, eyddi 17.736.928 krónum í framboði sínu til forseta, þar sem hún hlaut svo 275 atkvæði.

Fyrir hvert atkvæði eyddi hún því um 64.497 krónum.
Allir frambjóðendur nema Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir hafa skilað inn uppgjöri til Ríkisendurskoðunar og enn á eftir að fara yfir uppgjörið hjá nokkrum. mbl.is ákvað að deila kostnaði við hvert framboð niður á fjölda atkvæði sem hver frambjóðandi hlaut.
Athygli hefur vakið að forsetaframboð Katrínar Jakobsdóttur hafi kostað yfir 57 milljónir króna en þegar því er deilt niður á 53.980 atkvæði þá er um að ræða 1.062 krónur fyrir hvert atkvæði.
Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, eyddi rétt rúmlega 26 milljónum króna og hlaut 73.182 atkvæði. Eyddi hún því 355 krónum fyrir hvert atkvæði.
Í uppgjöri Ástþórs Magnússonar kemur fram að hann hafi eytt 8,9 milljónum króna. Hann hlaut 465 atkvæði og því kostnaður fyrir hvert atkvæði um 19.159 krónur.
Jón Gnarr eyddi 10.645.424 krónum og voru 21.634 sem kusu hann. Kostnaður fyrir hvert atkvæði því um 492 krónur.
Viktor Traustason og Eiríkur Ingi Jóhannsson hafa skilað inn uppgjöri og báðir eyddu þeir minna en 550 þúsund krónum og þurfa því ekki að upplýsa nánar um kostnað.
Viktor hlaut 392 atkvæði og Eiríkur 101 atkvæði.
Halla Hrund Logadóttir, Baldur Þórhallsson, Arnar Þór Jónsson og Ásdís Rán hafa skilað inn uppgjöri en Ríkisendurskoðun er enn með þau til skoðunar og því ekki hægt að skoða útgjöldin.