Kostnaður við framboð Katrínar Jakobsdóttur til forseta Íslands nam rúmlega 57 milljónum króna.
Kostnaður við framboð Katrínar Jakobsdóttur til forseta Íslands nam rúmlega 57 milljónum króna.
Kostnaður við framboð Katrínar Jakobsdóttur til forseta Íslands nam rúmlega 57 milljónum króna.
Frá þessu greinir Katrín í tilkynningu en Ríkisendurskoðun opinberar í dag uppgjör þeirra forsetaframbjóðenda sem skiluðu því inn til stofnunarinnar.
Katrín óskaði í ágúst eftir styrkjum til að greiða þann kostnað sem eftir stóð vegna framboðsins. Ráða má af tilkynningu fyrrverandi forsætisráðherrans að tekist hafi að loka gatinu.
Framlög til kosningabaráttunnar námu þannig 57.625.414 krónum. Útgjöldin námu 57.348.689 krónum.
Alls varði Katrín rúmlega 26 milljónum króna í auglýsingar og annan kynningarkostnað. Tæpar 12 milljónir fóru í kosningaskrifstofuna og hátt í 9 milljónir í fundi og ferðakostnað. Annar kostnaður nam um 10 milljónum króna.
Einstaklingar lögðu baráttunni til 41 milljón króna en um 8,5 milljónir komu frá fyrirtækjum. Sjálf setti Katrín þrjár milljónir króna í framboðið. Aðrar tekjur námu um 4,5 milljónum króna.
Segir í tilkynningu Katrínar að afgangurinn af rekstrinum verði látinn renna til góðgerðamála á næstunni.
„Ég er ótrúlega þakklát þeim sem studdu við framboðið – með vinnu, fjárframlögum og ótæmandi stuðningi og jákvæðum straumum. Það er ótrúlega mikils virði að finna slíkan stuðning og skynja þá miklu breidd sem er í stuðningsmannahópnum,“ skrifar Katrín.
„Þannig að nú þegar þessu er öllu lokið með formlegum hætti er mér þakklæti efst í huga og stolt yfir góðri og málefnalegri baráttu. Enn og aftur óska ég nýjum forseta velgengni í mikilvægum störfum og við ykkur segi ég TAKK!“