Ómótstæðilega gott grillað cinnabonbrauð úr smiðju Árna

Uppskriftir | 6. september 2024

Ómótstæðilega gott grillað cinnabonbrauð úr smiðju Árna

Hér er á ferðinni uppskrift af ómótstæðilega góðu grilluðu cinnabonbrauðið sem á eftir að trylla bragðlaukana. Ef þig langar að slá í gegn með sælkerabakkelsi um helgina þá er þetta málið. Árni Þorvarðarson bakari og fag­stjóri við Hót­el- og mat­væla­skól­ann í Kópa­vogi á heiðurinn af þessari dýrð. Cinnabon er vinsæl tegund af sætu brauði sem er þekkt fyrir sitt heillandi bragð og einstaklega bragðmikið yfirborð. Cinnabon er upphaflega frá Bandaríkjunum og hefur orðið mjög vinsælt um allan heim.

Ómótstæðilega gott grillað cinnabonbrauð úr smiðju Árna

Uppskriftir | 6. september 2024

Grillaða cinnabonbrauðið hans Árna Þorvarðarsonar bakara er ómótstæðilega gott og …
Grillaða cinnabonbrauðið hans Árna Þorvarðarsonar bakara er ómótstæðilega gott og fullkomið til gera vel við sig með um helgina. Samsett mynd

Hér er á ferðinni upp­skrift af ómót­stæðilega góðu grilluðu cinna­bon­brauðið sem á eft­ir að trylla bragðlauk­ana. Ef þig lang­ar að slá í gegn með sæl­kera­bakk­elsi um helg­ina þá er þetta málið. Árni Þor­varðar­son bak­ari og fag­stjóri við Hót­el- og mat­væla­skól­ann í Kópa­vogi á heiður­inn af þess­ari dýrð. Cinna­bon er vin­sæl teg­und af sætu brauði sem er þekkt fyr­ir sitt heill­andi bragð og ein­stak­lega bragðmikið yf­ir­borð. Cinna­bon er upp­haf­lega frá Banda­ríkj­un­um og hef­ur orðið mjög vin­sælt um all­an heim.

Þetta ostakrem er hreint lostæti.
Þetta ostakrem er hreint lostæti. Ljós­mynd/Á​rni Þor­varðar­son

Grillað cinna­bon­brauð

  • 592 g pít­sa­hveiti            
  • 7 g þurr­ger        
  • 12 g salt                                
  • 47 g olía                                
  • 332 g vatn         

Aðferð:               

  1. Vigtið allt hrá­efnið sam­an í hræri­véla­skál.
  2. Notið krók og hrærið í 4 mín­út­ur á 30% hraða og 4 mín­út­ur á 60% hraða.
  3. Setjið olíu í form og skiptið deig­inu í formin. Helst eru notuð ál­form sem hægt er að setja á grillið og hita upp.
  4. Leyfið deig­inu að standa við stofu­hita í um það bil 60 mín­út­ur vel húðað af olíu.
  5. Þrýstið út með putt­un­um þar til deigið nær út í allt formið.
  6. Stund­um þarf að end­ur­taka hvíld­ar­tím­ann.
  7. Setjið inn í kæli í 12 klukku­stund­ir.
  8. Stráið kanil­sykri yfir brauðið fyr­ir bakst­ur.
  9. Hitið ofn­inn í 210°C hita.
  10. Leyfið deig­inu að stækkað aðeins áður en það er bakað. Setjið inn í ofn á 210°C hita í um það bil 12 mín­út­ur. Eða bakaði í pít­sa­aofni á kald­asta svæðinu í ofn­in­um, gott er að setja álp­app­ír yfir svo brauðið brenni ekki að ofan.
  11. Þegar brauðið hef­ur kólnað er það skorið niður í flott­ar stærðir og ostakremi dreift yfir (sjá upp­skrift fyr­ir neðan).
  12. Gott er að hita aft­ur upp á grill­inu með mat ef vill.

Ostakrem

  • 62 g rjóma­ost­ur             
  • 125 g smjör (brætt)    
  • 1 tsk. vanillu­drop­ar       
  • 312 g flór­syk­ur                

Aðferð:

  1. Vigtið allt hrá­efnið sam­an nema smjörið í hræri­véla­skál og notið spaða.
  2. Bræðið smjörið í potti.
  3. Blandið svo sam­an við rjóma­ost­inn og flór­syk­ur­inn.
  4. Hrærið þar til kremið verður létt og ljóst.
  5. Setjið síðan yfir cinna­bon­brauðið eins og ykk­ur lang­ar að hafa það.
mbl.is