Laufey stórglæsileg á forsíðu Vogue

Poppkúltúr | 9. september 2024

Laufey stórglæsileg á forsíðu Vogue

Laufey Lín Bing Jónsdóttir, söngkona og lagahöfundur, prýðir forsíðuna á nýjasta hefti Vogue í Singapúr.

Laufey stórglæsileg á forsíðu Vogue

Poppkúltúr | 9. september 2024

Sannkölluð drottning í kjól frá Prabal Gurung.
Sannkölluð drottning í kjól frá Prabal Gurung. JAMIE MCCARTHY

Laufey Lín Bing Jónsdóttir, söngkona og lagahöfundur, prýðir forsíðuna á nýjasta hefti Vogue í Singapúr.

Laufey Lín Bing Jónsdóttir, söngkona og lagahöfundur, prýðir forsíðuna á nýjasta hefti Vogue í Singapúr.

Djasssöngkonan, sem hefur svo sannarlega farið sigurför um heiminn undanfarna mánuði, er í ítarlegu viðtali í tískutímaritinu og ræðir um lífið og tilveruna sem tvíburi, uppeldið og tónlistardrauminn.

Laufey lýsir æskuárunum á Íslandi og viðurkennir að hafa stundum upplifað sig út undan.

„Börnin fá að láta ímyndunaraflið og leikgleðina leika lausum hala; maður byrjaði snemma að taka sjálfstæðar ákvarðanir,” útskýrir söngkonan sem greindi frá því að móðir hennar, sem er kínversk, hafi kosið að ala hana og tvíburasystur hennar upp með venjum kínverskrar siðmenningar og aga.

„Foreldrar mínir, móðir mín þá sérstaklega, voru aðeins strangari en aðrir þegar kom að tónlistar- og hljóðfæraæfingum. Það hafði vissulega sína kosti og er ég að sjálfsögðu mjög þakklát fyrir það í dag, en ég upplifði mig oft út undan í æsku. Eftir skóla fóru vinir mínir að leika en ég fór ávallt rakleitt í selló- eða píanótíma.”

Laufey var ljósmynduð af tískuljósmyndaranum Maddy Rotman og klædd­ist fal­leg­um flík­um frá spænska tískuhúsinu Loewe. Hún deildi myndum úr tökunni á Instagram-síðu sinni á mánudag.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem djass­söng­kon­an prýðir forsíðu á er­lendu tíma­riti. Hún sat fyr­ir á forsíðumynd eins þekkt­asta tón­list­ar­tíma­rits í heimi, Bill­bo­ard, fyrr á þessu ári og einnig tískutímaritinu Female.

View this post on Instagram

A post shared by laufey (@laufey)

mbl.is