Lavazza opnar heimili kaffiunnandans

Kaffi | 11. september 2024

Lavazza opnar heimili kaffiunnandans

Um helgina opnaði Lavazza glæsilega sérverslun í verslun Hagkaups í Smáralind. Í sérversluninni má finna fjölbreytt úrval kaffiblanda, ásamt kaffifylgihlutum og gjafavöru fyrir kaffiunnendur. Innanhússarkitektinn Ragnar Sigurðsson sá um hönnun rýmisins.

Lavazza opnar heimili kaffiunnandans

Kaffi | 11. september 2024

Glæsileg nýja sérverslunin og kaffihúsið í Hagkaup í Smáralind. Ragnar …
Glæsileg nýja sérverslunin og kaffihúsið í Hagkaup í Smáralind. Ragnar Sigurðsson innanhússarkitekt á heiðurinn af hönnuninni. Ljósmynd/Daníel - Blik Studio

Um helgina opnaði Lavazza glæsilega sérverslun í verslun Hagkaups í Smáralind. Í sérversluninni má finna fjölbreytt úrval kaffiblanda, ásamt kaffifylgihlutum og gjafavöru fyrir kaffiunnendur. Innanhússarkitektinn Ragnar Sigurðsson sá um hönnun rýmisins.

Um helgina opnaði Lavazza glæsilega sérverslun í verslun Hagkaups í Smáralind. Í sérversluninni má finna fjölbreytt úrval kaffiblanda, ásamt kaffifylgihlutum og gjafavöru fyrir kaffiunnendur. Innanhússarkitektinn Ragnar Sigurðsson sá um hönnun rýmisins.

Helsti kaffiframleiðandinn á Ítalíu

Lavazza er einn helsti kaffiframleiðandi Ítalíu. Lavazza var stofnað af Luigi Lavazza í Torinó árið 1895 og var hann frumkvöðull þess að blanda saman kaffibaunum af ólíkum uppruna. Í dag leggur Lavazza áherslu á hágæða kaffiblöndur ásamt samfélagslegri ábyrgð og sjálfbærni innan kaffiiðnaðarins.

Sannkallaður draumastaður fyrir kaffiunnendur að finna sér sitt uppáhaldskaffi.
Sannkallaður draumastaður fyrir kaffiunnendur að finna sér sitt uppáhaldskaffi. Ljósmynd/Daníel - Blik Studio

„Sérverslun Lavazza er vettvangur fyrir kaffiáhugafólk til að kynnast nýjum kaffiblöndum og bruggaðferðum. Þá munum við nýta aðstöðuna til að halda kynningar og námskeið, og gefa viðskiptavinum tækifæri til að víkka sjóndeildarhringinn þegar kemur að kaffiheiminum,“ segir María Jóna Samúelsdóttir, framkvæmdastjóri Danól.

Kaffiþjónar buðu upp á kaffi og kaffiráðgjöf

Um helgina var opnunarhátíð þar sem kaffibarþjónar Lavazza buðu viðskiptavinum upp á ítalskan espresso, cappuccino og caffè latte, ásamt persónulegri kaffiráðgjöf, við ljúfa kúbverska tóna og frábærar undirtektir.

Þá var nýjasta viðbót ¡Tierra! Vörulínunnar kynnt; Tierra for Cuba, sem er vönduð blanda af lífrænum og handtíndum Arabica og Robusta baunum frá Kúbu. „Baunirnar eru miðlungsristaðar og í góðu jafnvægi með tónum af súkkulaði og hnetum, og þykkri, fallegri crema,“ segir María Jóna.

Sérhannaðir keramíkbollar frá Óla Hilm fyrir Lavazza.
Sérhannaðir keramíkbollar frá Óla Hilm fyrir Lavazza. Ljósmynd/Daniel - Blik Studio

„Við fögnum þessu samstarfi, Íslendingar eru ein mesta kaffi þjóð heims hvað varðar neyslu á þessum vinsæla drykk. Í þessari nýju verslun gefst okkar viðskiptavinum tækifæri á að fara í ýmsar óvissuferðir með því að smakka á tegundum sem fást alla jafna ekki hér á landi. Þessu til viðbótar verða spennandi gjafavörur í boði þannig að þeir sem eru í vandræðum að vinna tækifærisgjafir eða bara jólagjafir munu án efa geta fundið eitthvað spennandi til að gefa við næsta tækifæri. Við hvetjum við viðskiptavini okkar að kíkja við fyrsta tækifæri og gera tilraunir með nýjar kaffibaunir,“ segir Sigurður Reynaldsson framkvæmdastjóri Hagkaups.

Kaffibarþjónar sáum um að bjóða gestum og gangandi upp á …
Kaffibarþjónar sáum um að bjóða gestum og gangandi upp á rjúkandi heitt kaffi. Ljósmynd/Daniel - Bliks Studio

Vörulína sem samanstendur af kaffibaunum

¡Tierra! vörulínan samanstendur af kaffibaunum frá samfélögum þar sem Lavazza Foundation stendur fyrir samfélagslegum ábyrgðarverkefnum. Baunirnar koma allar frá Rainforest Alliance vottuðum og/eða lífrænt vottuðum framleiðendum. ¡Tierra! verkefnið hófst árið 2002 og nær nú yfir þrjár heimsálfur, 20 lönd og 33 samfélagsverkefni sem yfir 180 þúsund einstaklingar njóta góðs af.

Í Kúbu styður Lavazza við konur og ungt fólk í kaffiiðnaðinum, ásamt því að stuðla að nýstárlegum og sjálfbærum ræktunaraðferðum. Teymi af 95 konum stjórnar handvirku vali á baunum, en með handvirkri gæðastjórnun má finna galla sem vélar geta ekki greint, sem tryggir gæði hverrar baunar. Annar mikilvægur þáttur verkefnisins á Kúbu er endurheimt kaffiplantekra, en ásamt samstarfsaðilum sínum hefur Lavazza stofnað 10 nýjar framleiðslustöðvar og gróðursett yfir 6 milljónir kaffiplöntur. Stuðningur Lavazza á Kúbu nær til 170 framleiðanda sem hafa fengið lífræna vottun og tileinkað sér ræktunaraðferðir sem virða staðbundið umhverfi; til dæmis með notkun skordýra og ánamaðka til að búa til lífræna moldu í samræmi við meginreglur hringlaga hagkerfisins.

mbl.is