Bandaríska tónlistarkonan Melissa Viviane Jefferson, betur þekkt undir listamannsnafninu Lizzo, ákvað að taka heilsuna föstum tökum fyrir örfáum árum síðan og hefur verið dugleg að sýna afrakstur vinnu sinnar á Instagram-reikningi sínum.

Lizzo hefur lengi leyft fólki að fylgjast með sér á samfélagsmiðlum en tónlistarkonan birtir mjög reglulega myndir og myndskeið af sér. Upp á síðkastið hefur tónlistarkonan, sem vekur gjarnan athygli fyrir skilaboð sín um sjálfsást og jákvæða líkamsímynd, sýnt frá æfingarútínum og hugleiðslustundum og einnig státað sig af breyttum matarvenjum, en Lizzo hefur verið grænkeri til nokkurra ára.
Í myndbandi sem Lizzo birti á Instagram-síðu sinni nýverið sýndi hún muninn á líkamsástandi sínu á milli áranna 2021 og 2024.
Síðasta ár var krefjandi í lífi tónlistarkonunnar. Lizzo var ákærð af þremur fyrrverandi dönsurum sínum sem héldu því fram að poppdívan hafi skapað fjandsamlegt vinnuumhverfi fyrir dansarana.
Í málsókninni, sem höfðuð var í Los Angeles í ágúst 2023, var Lizzo sökuð um ýmis brot á vinnulögum í Kaliforníu sem sneru að velferð dansaranna.