Það væsir sannarlega ekki um TikTok-stjörnurnar Sigurlaugu Birnu Garðarsdóttur og Ólaf Jóhann Steinsson, betur þekktur sem Óli á hjóli, en þau eru stödd í sólríku og töfrandi fríi um þessar mundir.

Parið hefur notið mikilla vinsælda á samfélagsmiðlinum TikTok, en þar eru þau dugleg að birta hin ýmsu myndbönd, þar á meðal viðtöl við fólk á förnum vegi og ferðamyndskeið.
Ferðalag parsins byrjaði í Flórída í Bandaríkjunum, en þau héldu svo í siglingu á glæsilegu skemmtiferðaskipi um karabíska hafið. Þau komu við á Bahamaeyjum þar sem þau áttu eftirminnilegar stundir, en þau nutu sólarinnar á ströndinni og syntu með ofurkrúttlegum svínum.
Sigurlaug og Óli hafa verið dugleg að deila ævintýralegu efni frá ferðalaginu á samfélagsmiðlum. Þau birtu bæði myndaröð frá Bahamaeyjum á Instagram sem sló rækilega í gegn, enda ekki á hverjum degi sem fólk fær að synda með svínum í kristaltærum sjó.