Bryndís Haraldsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokkinn valdi sér skærbleika dragt fyrir þingsetninguna nú á dögunum. Liturinn heillaði Bryndísi sem keypti dragtina á útsölu í Lettlandi.

„Ég var svo glöð þegar ég sá hana því þetta er svo bjartur og fallegur litur,“ segir Bryndís. „Mér finnst bleikur fallegur og táknrænn þessa dagana. Svo er ég rosalega mikið fyrir liti og ákvað fyrir nokkrum árum að reyna að hætta algjörlega að klæða mig í svart.“
Hún segist ekki hafa verið lengi að velja sér föt fyrir tilefnið. „Ég er svo lánsöm að eiga stóran og mikinn fataskáp. Ég hafði séð fyrir mér að nota dragtina í brúðkaup í sumar en komst hreinlega ekki í það að stytta buxurnar. Stubbar eins og ég þurfum gjarnan að stytta buxur. Svo ég náði því fyrir þingsetninguna,“ segir Bryndís.
Fylgihlutirnir sem hún valdi í stíl voru dökkbleikir Guess-skór sem hún keypti fyrir nokkrum árum og færeyskir eyrnalokkar úr fiskiroði. „Veskið er svo vintage frá Gyllta kettinum sem er ein af mínum uppáhaldsbúðum hér á landi.“