Þrír liðsmenn hafa bæst við leikarahóp bandaríska grínþáttarins Saturday Night Live. Þeir voru kynntir til leiks á samfélagsmiðlasíðu þáttarins í gærdag.

Ashley Padilla, Emil Wakim og Jane Wickline, sem öll eiga bakgrunn í spunaleik, munu stíga á svið þann 28. september næstkomandi þegar 50. þáttaröð af Saturday Night Live fer í loftið.
Leikararnir Chloe Troast, Molly Kearney og Punkie Johnson munu ekki snúa aftur.
Grínþátturinn fagnar 50 ára afmæli sínu í október á næsta ári, en fyrsti þátturinn fór í loftið þann 11. október 1975 og var það George Carlin heitinn sem fór á kostum sem gestastjórnandi.
Lorne Michaels, maðurinn á bak við langlífasta gamanþátt í bandarískri sjónvarpssögu, hefur látið hafa það eftir sér að hann vilji fylgja Saturday Night Live í gegnum 50. þáttaröðina, en margir telja líklegt að serían muni ljúka göngu sinni eftir 50 ár á skjánum.