Íslenskar mæður eru einstök tegund. Þær eru glæsilegar, uppfullar af kærleik, visku og eldmóði og kalla sko ekki allt ömmu sína.
Íslenskar mæður eru einstök tegund. Þær eru glæsilegar, uppfullar af kærleik, visku og eldmóði og kalla sko ekki allt ömmu sína.
Íslenskar mæður eru einstök tegund. Þær eru glæsilegar, uppfullar af kærleik, visku og eldmóði og kalla sko ekki allt ömmu sína.
mbl.is tók saman lista yfir heitustu mæður landsins!
Guðrún Ýr Eyfjörð Jóhannesdóttir, einnig þekkt undir listamannanafninu GDRN, er ein vinsælasta tónlistarkona landsins. Hún á einn son með kærasta sínum, Árna Steini Steinþórssyni, sem kom í heiminn í júlí 2022.
Þjálfarinn Rannveig Hildur Guðmundsdóttir á fimm börn með sambýlismanni sínum, Hallgrími A. Ingvarssyni. Þau rötuðu í fjölmiðla á skírdag árið 2023 þegar þau eignuðust þríbura, en fyrir áttu þau tvö börn.
Fjölmiðlakonan Inga Lind Karlsdóttir er flestum landsmönnum kunnug. Hún á fimm stálpuð börn, fjögur úr fyrri samböndum og eina stjúpdóttur úr fyrra hjónabandi.
Áhrifavaldurinn og dansarinn Ástrós Traustadóttir eignaðist sitt fyrsta barn með sambýlismanni sínum, Adam Karli Helgasyni, í febrúar 2023. Stúlkan fékk nafnið Nóra Náð.
Knattspyrnustjarnan Sara Björk Gunnarsdóttir eignaðist son með fótboltamanninum Árna Vilhjálmssyni þann 16. nóvember 2021. Sara Björk er fyrrverandi fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu og leikjahæsta landsliðskona Íslands frá upphafi.
Fanney Ingvarsdóttir, markaðsfulltrúi Bioeffect og fyrrverandi fegurðardrottning, á tvö börn, dótturina Kolbrúnu Önnu og soninn Reyni Alex, með eiginmanni sínum Teiti Reynissyni. Þau gengu nýverið í hjónaband við glæsilega athöfn í Reykjavík.
Fjölmiðlakonan Viktoría Hermannsdóttir á samtals fimm börn með eiginmanni sínum Sólmundi Hólm Sólmundarsyni. Hjónin tóku á móti yngsta barni sínu í byrjun júní 2021.
Áhrifavaldurinn Móeiður Lárusdóttir á tvö börn, dæturnar Matteu Móu og Mörlu Ósk, með kærasta sínum, knattspyrnumanninum Herði Björgvini Magnússyni. Fjölskyldan er búsett í Grikklandi þar sem Hörður spilar með knattspyrnuliðinu Panathinaikos í Aþenu.
Birgitta Líf Björnsdóttir, samfélagsmiðlastjarna og markaðsstjóri World Class, eignaðist son með sambýlismanni sínum Enok Jónssyni þann 8. febrúar síðastliðinn og hefur verið dugleg að deila myndum af honum á samfélagsmiðlasíðum sínum.
Förðunarfræðingurinn og áhrifavaldurinn Guðrún Sørtveit á tvö börn með sambýlismanni sínum, Steinari Erni Gunnarssyni. Guðrún hefur notið mikilla vinsælda á samfélagsmiðlum og byrjaði nýverið með hlaðvarp ásamt vinkonu sinni, Ástrós Traustadóttur, sem ætlað er mæðrum.
Leik- og söngkonan Hildur Vala Baldursdóttir á tvær ungar dætur með eiginmanni sínum Kjartani Ottóssyni. Síðustu mánuði hefur Hildur Vala heillað sýningargesti, unga sem aldna, í hlutverki Elsu í söngleiknum Frosti.
Áhrifavaldurinn Brynhildur Gunnlaugsdóttir eignaðist dóttur þann 4. desember síðastliðinn með kærasta sínum, körfuboltamanninum Dani Koljanin. Samfélagsmiðlastjarnan hélt meðgöngunni leyndri og hefur ekki birt myndir af stúlkunni á Instagram.
Söng- og leikkonan Ágústa Eva Erlendsdóttir er tveggja barna móðir. Hún eignaðist dóttur með handknattleiksmanninum Aroni Pálmarssyni árið 2018 og á einnig son sem er í dag 12 ára gamall.
Hulda Ósmann á tvö börn með sambýlismanni sínum Jóni Ósmann, eina dóttur og einn stjúpson. Eftir stormasaman og kaldan vetur á klakanum árið 2018 ákvað fjölskyldan að flytja til Tenerife á Spáni þar sem þau una sér vel í sólinni.
Förðunarfræðingurinn og áhrifavaldurinn Fanney Dóra Veigarsdóttir er ófrísk að sínu öðru barni með unnusta sínum, Aroni Ólafssyni, en þau eignuðust sitt fyrsta barn saman árið 2021.