Rússar og Úkraínumenn skiptust á 103 stríðsföngum í dag, að því er varnarmálaráðuneyti Rússlands segir í tilkynningu.

„Í kjölfar samningaviðræðna hefur 103 rússneskum hermönnum, sem teknir voru til fanga í Kúrsk-héraði, verið skilað frá yfirráðasvæði Úkraínu,“ sagði í tilkynningu.
„103 úkraínskum stríðsföngum var skilað í staðin.“
Uppfært klukkan 13.12
Volódimír Selenskí Úkraínuforseti hefur staðfest að fangaskiptin hafi átt sér stað.
Einhverjir af Úkraínumönnunum höfðu verið í haldi Rússa frá því að Rússar hertóku Asovstal-verksmiðjuna í Úkraínu í maí 2022.
Í gær tilkynnti Volódimír Selenskí Úkraínuforseti að 49 úkraínskir stríðsfangar hefðu snúið til baka til síns heima úr haldi Rússa.