Icelandair mun fljúga til Gautaborgar næsta sumar

Beint flug á spennandi staði | 17. september 2024

Íslenska flugfélagið Icelandair mun hefja flug til Gautaborgar í Svíþjóð frá og með næsta sumri. Flogið verður tvisvar í viku, á fimmtudögum og sunnudögum frá 19. júní til 31. ágúst. Gautaborg er önnur stærsta borg Svíþjóðar og er landsmönnum kunn en þrjú stór íþróttamót barna og unglinga eru haldin í Gautaborg árlega.  

Íslenska flugfélagið Icelandair mun fljúga til Gautaborgar næsta sumar.
Íslenska flugfélagið Icelandair mun fljúga til Gautaborgar næsta sumar. mbl.is/Árni Sæberg

Íslenska flugfélagið Icelandair mun hefja flug til Gautaborgar í Svíþjóð frá og með næsta sumri. Flogið verður tvisvar í viku, á fimmtudögum og sunnudögum frá 19. júní til 31. ágúst. Gautaborg er önnur stærsta borg Svíþjóðar og er landsmönnum kunn en þrjú stór íþróttamót barna og unglinga eru haldin í Gautaborg árlega.  

Íslenska flugfélagið Icelandair mun hefja flug til Gautaborgar í Svíþjóð frá og með næsta sumri. Flogið verður tvisvar í viku, á fimmtudögum og sunnudögum frá 19. júní til 31. ágúst. Gautaborg er önnur stærsta borg Svíþjóðar og er landsmönnum kunn en þrjú stór íþróttamót barna og unglinga eru haldin í Gautaborg árlega.  

„Það er mjög ánægjulegt að bjóða aftur upp á flug til Gautaborgar yfir sumartímann. Við höfum fundið fyrir mikilli eftirspurn eftir flugi til borgarinnar á meðal ferðaskipuleggjenda og viðskiptavina okkar, en þúsundir íslenskra íþróttaiðkenda heimsækja borgina ár hvert og oft fylgja heilu fjölskyldurnar sínu fólki. Við höfum lagt áherslu á að bjóða upp á ferðir þegar landsliðin okkar spila erlendis en það er ánægjulegt að geta líka boðið upp á góðar tengingar í tengslum við íþróttamót yngri kynslóða, enda erum við öll í sama liði,“ Tómas Ingason, framkvæmdastjóri tekju-, þjónustu- og markaðssviðs Icelandair. 

Gautaborg er önnur stærsta borg Svíþjóðar.
Gautaborg er önnur stærsta borg Svíþjóðar. Ljósmynd/Icelandair
mbl.is