Söngkonan og tónlistarmaðurinn, Sigríður Thorlacius, fagnaði þriggja ára afmæli einkasonarins á dögunum. Sonurinn Markús Thorlacius Antonsson fæddist 9. september 2021 en Sigríður deildi mynd af feðgunum, Antoni Birni Markússyni og syninum af því tilefni.

„Ég var ekkert að pæla mikið í því hvort mig langaði að eiga börn og hugsaði bara að ég myndi gera það seinna. Mamma eignaðist mig 43 ára og mér fannst ég bara hafa nógan tíma,“ sagði Sigríður í viðtali í Sunnudagsmogganum 2022.
„Ég var að hlaupa á eftir „giggunum” því ef maður segir nei þá grípur þau einhver annar. Mér fannst aldrei tímabært að vera í sambúð eða eignast börn. Ég bjó ein og vann á skrítnum tímum og var mikið úti að borða og átti skemmtilegt líf. En svo kom ástin inn í líf mitt og ég er þvílíkt þakklát fyrir það. Ég horfi ekki til baka með neinum söknuði. Þetta eru eins og tveir ólíkir kaflar,“ segir hún og segir lífið auðvitað hafa breyst mikið eftir að Markús litli fæddist.