Myndband af íslenskum hestum á hálendi Íslands hefur vakið heimsathygli á TikTok, en í myndbandinu sést stóð af hestum hlaupa niður svarta sanda á eftir fugli sem virðist leiða stóðið.

Myndbandið hefur þegar fengið tæplega átta milljónir áhorfa og farið eins og eldur í sinu um samfélagsmiðla.
Af ummælum að dæma virðist myndbandið hafa hreyft við mörgum, en þó nokkrir segja það minna á atriði úr teiknimyndinni Villti folinn (e. Spirit) sem kom út árið 2002 og hefur notið gríðarlegra vinsælda.
„Er þetta fugl sem flýgur með þeim í byrjun? Alveg eins og vinur Spirit í myndinni,“ skrifaði einn notandi á meðan annar sagði: „Þetta fékk mig til að gráta ... Svo fallegt.“
@annikalamour The free spirit of Iceland 🇮🇸 #iceland #icelandichorse #islandshest #islandpferd #islandshäst #pferd #häst #hest #equestrianlife #equestrian #horsegirl ♬ I Will Always Return - Finale - Bryan Adams