Leikarahjónin John Mulaney og Olivia Munn eignuðust sitt annað barn saman nýverið. Fyrir eiga þau soninn Malcolm Hiệp sem kom í heiminn í nóvember 2021.

Munn tilkynnti gleðitíðindin í færslu á Instagram-síðu sinni í gærdag og birti fallega myndaseríu af nýjasta fjölskyldumeðlimnum. Barnið, sem er stúlka, fæddist með aðstoð staðgöngumóður.
„Méi June Mulaney kom í heiminn þann 14. september 2024, á ári drekans.
Ég upplifði alls konar tilfinningar yfir því að geta ekki gengið með dóttur mína. Þegar ég hitti staðgöngumóður okkar í fyrsta sinn þá ræddum við saman móðir til móður. Hún sýndi mér mikinn skilning og ég vissi í hjarta mínu að ég hefði fundið raunverulegan engil. Engin orð geta lýst þakklæti mínu. Hún hélt barninu okkar öruggu í níu mánuði og lét langþráðan draum okkar rætast.
Ég er svo stolt af litlu plómunni minni, litla drekanum mínum sem lagði upp í þessa miklu vegferð til þess að koma til okkar.
Méi (borið fram may) þýðir plóma á kínversku,“ skrifaði nýbakaða móðirin við færsluna.
Síðustu mánuðir hafa reynst Munn afar erfiðir.
Á síðasta ári greindist leikkonan með Luminal B-krabbamein í báðum brjóstum og gekkst undir tvöfalt brjóstnám aðeins 30 dögum eftir greiningu. Munn ákvað í framhaldi að láta fjarlægja leg, eggjastokka og eggjaleiðara í þeirri von um að minnka líkurnar á að meinið taki sig upp aftur.