Jón fangaði foreldrahlutverkið í sinni tærustu mynd

Instagram | 24. september 2024

Tónlistarmaðurinn Jón Jónsson er mikill húmoristi og á auðvelt með að sjá spaugilegu hliðar hins daglega lífs, enda sjaldan dauð stund á stóru og barnmörgu heimili, en Jón og eiginkona hans, Hafdís Björk Jónsdóttir tannlæknir, eiga fjögur börn á aldursbilinu 2 til 11 ára.

Jón Jónson og Hafdís Björk Jónsdóttir gengu í það heilaga …
Jón Jónson og Hafdís Björk Jónsdóttir gengu í það heilaga 2018. mbl.is/Stella Andrea

Tónlistarmaðurinn Jón Jónsson er mikill húmoristi og á auðvelt með að sjá spaugilegu hliðar hins daglega lífs, enda sjaldan dauð stund á stóru og barnmörgu heimili, en Jón og eiginkona hans, Hafdís Björk Jónsdóttir tannlæknir, eiga fjögur börn á aldursbilinu 2 til 11 ára.

Tónlistarmaðurinn Jón Jónsson er mikill húmoristi og á auðvelt með að sjá spaugilegu hliðar hins daglega lífs, enda sjaldan dauð stund á stóru og barnmörgu heimili, en Jón og eiginkona hans, Hafdís Björk Jónsdóttir tannlæknir, eiga fjögur börn á aldursbilinu 2 til 11 ára.

Jón birti stórskemmtilega færslu á Instagram Story á mánudag sem fangar foreldrahlutverkið í sinni tærustu mynd. 

Tónlistarmaðurinn birti mynd af bol með áletruninni „Parents Day Off”, en á myndinni er Jón upptekinn við að skola ælu úr bolnum. Það er því ekki mikið um frídaga, eins og orðin á bolnum gefa til kynna, þegar kemur að því að vera foreldri.

„Eitthvað svo yndislega kaldhæðið við að þrífa ælu úr bol með þessari áletrun,” skrifaði Jón við færsluna.

Það skiptir öllu máli að hafa gaman.
Það skiptir öllu máli að hafa gaman. Skjáskot/Instagram
mbl.is