Ný hönnun hefur litið dagsins ljós hjá Heklu Björk Guðmundsdóttur listakonu og hönnuði, en hönnun hennar undir merkinu Heklaislandia hefur notið mikilla vinsælda og löngu orðin þekkt hér á landi og víðar. Mói skálar eru glæný hönnun og eru í anda þess sem hún hefur verið að hanna gegnum tíðina.

Fyrstu vörurnar hennar komu árið 1996 síðan þá hefur bæst jafnt og þétt við fallega hönnun hennar, sem Íslendingar hafa fengið að njóta allt árið um kring. Hún sækir innblástur í villta flóru, dýralíf og náttúru Íslands sem skilar sér vel í hönnun hennar fyrir hverja árstíð og líka þegar það kemur að jólunum.
„Innblásturinn af Móa skálunum er alveg frá árinu 1996 þegar ég mótaði keramikskál með loki sem var með móa og kind á toppnum. Það tekur mig alltaf tíma að koma hugmynd í framkvæmd en þessi hugmynd tók extra langan tíma,“ segir Hekla og brosir.
„Mói er náttúruundur sem ég hef heillast af allt frá barnæsku og kemur hann oft fram í málverkum mínum, en nú hef ég sett hann í þrívíddar form í glænýrri hönnun minni, Mói skálar.“
Móinn er einfaldaður og stílfærður á einstakan fallegan hátt, en skálarnar koma bæði eingöngu með móa á loki og móa loki með kind, lóu eða krumma á toppnum. Þær koma í þremur litum hvítar, svartar og brúnar.
Skálarnar er hægt að nota á ýmsan hátt, til að geyma bestu konfektmolana, lítil leyndarmál, góðar minningar, við kaffikönnuna, lyklakippuna eða bara til að fegra eldhúsið og heimilið.