Uppistandarinn Stefán Ingvar Vigfússon hefur verið án áfengis í átta ár.
Uppistandarinn Stefán Ingvar Vigfússon hefur verið án áfengis í átta ár.
Uppistandarinn Stefán Ingvar Vigfússon hefur verið án áfengis í átta ár.
Í tilefni þess birti hann færslu á Instagram-reikningi sínum þar sem hann segist þakklátur fyrir allt. Stefán fagnar deginum í Dublin.
„Edrú í átta ár í dag, þakklátur fyrir allt. Ég er farin að hallast að því að það fari mér betur en að vera alltaf fullur endalaust og út um allt.
Ég fagna þessum tímamótum í Dublin og stimpla mig sem eina manneskjan í Dublin sem ekki drekkur áfengi,“ skrifar hann við færsluna.
Stefán og sambýliskona hans, Hólmfríður María Bjarnardóttir, eða Hófí, vöktu mikla athygli fyrr á árinu þegar þau fermdu heimilisköttinn sinn, hana Lísu.
Fermingarveislan var hin glæsilegasta og fór fram í Tjarnarbíói. Matthías Tryggvi Haraldsson, leikskáld og sviðshöfundur, sá um að ferma köttinn.