Segir Sigmund minna á Georg Bjarnfreðarson

Spursmál | 25. september 2024

Segir Sigmund minna á Georg Bjarnfreðarson

Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra Sjálfstæðisflokksins, segir Sigmund Davíð Gunnlaugsson, formann Miðflokksins, minna á Georg Bjarnfreðarson, persónu úr gamanþáttaröðinni Næturvaktin. 

Segir Sigmund minna á Georg Bjarnfreðarson

Spursmál | 25. september 2024

Björn Bjarnason segir Davíð minna á Georg Bjarnfreðarson.
Björn Bjarnason segir Davíð minna á Georg Bjarnfreðarson. Samsett mynd

Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra Sjálfstæðisflokksins, segir Sigmund Davíð Gunnlaugsson, formann Miðflokksins, minna á Georg Bjarnfreðarson, persónu úr gamanþáttaröðinni Næturvaktin. 

Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra Sjálfstæðisflokksins, segir Sigmund Davíð Gunnlaugsson, formann Miðflokksins, minna á Georg Bjarnfreðarson, persónu úr gamanþáttaröðinni Næturvaktin. 

Þetta segir Björn í pistli á heimasíðu sinni í kjölfar þess að Sigmundur líkti honum við eins manns „skrímsladeild“ í viðtali í Spursmálum.

Georg Bjarnfreðarson í Fangavaktinni.
Georg Bjarnfreðarson í Fangavaktinni.

„Yfirlæti Georgs með öll háskólaprófin sín

Sigmundur dró upp þessa viðlíkingu til að svara gagnrýni Björns sem hefur iðulega minnt á að það var undir stjórn Sigmundar sem Ísland gekkst undir Parísarsamkomulagið, bindandi samkomulag um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda. 

Í pistlinum segir Björn: „Yfirlæti Georgs með öll háskólaprófin sín á bensínstöðinni kemur mér í huga þegar ég les á mbl.is að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hafi endurtekið í sjónvarpsþættinum Spursmál sem blaðið sýnir að ég væri eins manns „skrímsladeild“ í Sjálfstæðisflokknum af því að ég minnti á að Sigmundi Davíð hentaði ekki núna að minnt væri á að hann skrifaði í desember 2015 undir Parísarsamkomulagið um loftslagsmál.“

Hér fyrir neðan má hlusta á Spursmálaþáttinn sem um ræðir í heild sinni:

mbl.is