Selenskí: Pútín hyggst ráðast á kjarnorkuver

Úkraína | 25. september 2024

Selenskí: Pútín hyggst ráðast á kjarnorkuver

Úkraínumenn segjast hafa gögn um að Vladimír Pútín Rússlandsforseti hafi í hyggju að láta her sinn ráðast á kjarnorkuver í Úkraínu til að laska orkukerfi Úkraínumanna.

Selenskí: Pútín hyggst ráðast á kjarnorkuver

Úkraína | 25. september 2024

Selenskí ávarpaði allsherjaþing Sameinuðu þjóðanna.
Selenskí ávarpaði allsherjaþing Sameinuðu þjóðanna. AFP/Getty Images/Spencer Platt

Úkraínumenn segjast hafa gögn um að Vladimír Pútín Rússlandsforseti hafi í hyggju að láta her sinn ráðast á kjarnorkuver í Úkraínu til að laska orkukerfi Úkraínumanna.

Úkraínumenn segjast hafa gögn um að Vladimír Pútín Rússlandsforseti hafi í hyggju að láta her sinn ráðast á kjarnorkuver í Úkraínu til að laska orkukerfi Úkraínumanna.

Frá þessu greindi Volodimír Selenskí Úkraínuforseti í ávarpi sínu til Sameinuðu þjóðanna fyrr í dag.

„Nýlega fékk ég enn eina ógnvekjandi skýrslu frá leyniþjónustunni. Nú virðist Pútín ætla að gera árásir á kjarnorkuverin okkar og innviðina, með það að markmiði að aftengja orkuverin frá raforkukerfinu,“ sagði Selenskí á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna.

Rússar náðu tveimur bæjum á sitt vald

Á sama tíma í dag sagði varnarmálaráðuneyti Rússlands að þeim hefði tekist að klófesta bæina Gostre og Grigorivka í Dónetsk-héraði í austurhluta Úkraínu.

Vadym Filashkin, héraðsstjóri í Dónetsk, sagði í dag að rússneskir hermenn hefðu reynt að brjótast inn fyrir varnarlínu Úkraínu og inn í Vugledar, gamlan kolanámubæ sem er sunnar í héraðinu. Hann sagði þó úkraínska herinn vera að brjóta aftur á bak sókn rússnesku hermannanna.

„Um 100 manns eru enn í bænum og neita að yfirgefa hann. Það er ómögulegt að koma til skila mannúðaraðstoð því óvinurinn skýtur á alla vegi,“ sagði héraðsstjórinn.

mbl.is