Skráningar í Miðflokkinn tekið risastökk

Alþingi | 25. september 2024

Skráningar í Miðflokkinn tekið risastökk

Skráningum í Miðflokkinn hefur fjölgað talsvert síðustu vikur, á sama tíma og fylgi flokksins er á blúss­andi sigl­ingu sam­kvæmt skoðana­könn­ununum.

Skráningar í Miðflokkinn tekið risastökk

Alþingi | 25. september 2024

Miðflokksmennirnir Sigmundur Davíð Gunnlauggson formaður og Bergþór Ólason þingmaður.
Miðflokksmennirnir Sigmundur Davíð Gunnlauggson formaður og Bergþór Ólason þingmaður. Samsett mynd

Skráningum í Miðflokkinn hefur fjölgað talsvert síðustu vikur, á sama tíma og fylgi flokksins er á blúss­andi sigl­ingu sam­kvæmt skoðana­könn­ununum.

Skráningum í Miðflokkinn hefur fjölgað talsvert síðustu vikur, á sama tíma og fylgi flokksins er á blúss­andi sigl­ingu sam­kvæmt skoðana­könn­ununum.

Í nýjustu könnun Maskínu mælist flokkurinn með með 17% fylgi. Þá er hann með 3,6 pró­sentu­stiga for­skot á Sjálf­stæðisflokk­inn en mun­ur­inn þykir töl­fræðilega mark­tæk­ur.

En fylgi flokksins er ekki það eina sem hefur aukist.

„Skráningar í flokkinn hafa tekið algjört risastökk undanfarið,“ segir Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, í samtali við mbl.is.

Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, skaut föstum skotum á ríkisstjórnina.
Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, skaut föstum skotum á ríkisstjórnina. mbl.is/Arnþór

Fleira ungt fólk sækist í flokkinn

„Það hefur verið mjög ánægjulegt að fylgjast með bæði fjölgun og aldurssamsetningunni, þar sem ungt fólk er að koma mjög sterkt inn.“

Í raun hafi skráningum farið að fjölga í vor. Aukningin sé því í raun ekki alveg ný tilkomin.

„Svo er þetta áberandi annað stökk þegar haustþing kom saman aftur og búið að vera stöðugt frá þingsetningu,“ segir Bergþór, sem kveðst þó ekki geta gefið upp fjölda skráðra Miðflokksmanna að svo stöddu.

„Þetta er nú einhver speglun á því sem við erum að sjá í könnunum. Fólk er tilbúnara að láta vita af sér og taka þátt, vera hluti af þessari heild sem Miðflokkurinn er.“

mbl.is