Það sem kóngar og prinsar áttu eitt sinn sameiginlegt fyrir utan augljós forréttindi í lífinu var að þeir þóttu afar myndarlegir og eftirsóttir piparsveinar.

Albert fursti af Mónakó er 66 ára og var alltaf mikið kvennagull. Hann var liðtækur íþróttamaður á yngri árum og keppti á ólympíuleikum í sleðaíþrótt. Í dag er hann giftur afrekssundkonunni Charlene Wittstock og eiga þau tvíbura saman. Stöðugar sögusagnir eru um bresti í hjónabandinu þeirra og glæfraleg fjármál. Þá var um daginn höfðað faðernismál á hendur honum.
Andrés prins er 64 ára og hefur beðið mikla álitshnekki undanfarin ár. Karl kóngur vill sem minnst af honum vita og er að reyna að fá hann út úr Royal Lodge sem er mikið glæsihýsi í eign konungsfjölskyldunnar. Þar býr Andrés ásamt fyrrverandi eiginkonu sinni. Færri vita að Andrés var á sínum tíma einn eftirsóttasti piparsveinn heims og þótti afar heitur.
Karl Gústaf kóngur er 74 ára og mjög hress. Á sínum tíma voru uppi miklar og svæsnar sögur um partístand kóngsins sem rifjaðar eru upp reglulega í sænskum fjölmiðlum. Kóngurinn brást við þeim sögum með óljósum hætti árið 2010 þegar hann sagðist hafa snúið blaðinu við og valið að horfa fram á veginn enda löngu liðnir atburðir. Þá hefur hann einnig valdið usla með karlrembulegar skoðanir en hann var ósáttur við það þegar lögum var breytt og elsta dóttirin varð krúnuerfinginn en ekki sonur hans sem var yngri.
Karl kóngur er 75 ára og þykir mjög mikil týpa. Honum er mjög umhugað um náttúruna og heilsuna og lifir á fræjum og stundar óhefðbundnar lækningar. Á yngri árum var hann mikill íþróttamaður og kvennagull þó Kamilla drottning hafi þó alltaf átt hug hans og hjarta.