Tilnefndur sem besti viðburðarhaldarinn í Evrópu

Viðburðir | 25. september 2024

Tilnefndur sem besti viðburðarhaldarinn í Evrópu

Götubitinn – Reykjavík Street Food hefur verið tilnefndur sem „Besti viðburðarhaldarinn í Evrópu“ á European Street Food Awards, eða „Best street food event organiser in Europe“. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Götubitanum - Reykjavik Street Food.

Tilnefndur sem besti viðburðarhaldarinn í Evrópu

Viðburðir | 25. september 2024

Róbert Aron Magnússon segir það mikinn heiður Götubitann að vera …
Róbert Aron Magnússon segir það mikinn heiður Götubitann að vera tilnefndur sem „Besti viðburðarhaldarinn í Evrópu“. Samsett mynd

Götubitinn – Reykjavík Street Food hefur verið tilnefndur sem „Besti viðburðarhaldarinn í Evrópu“ á European Street Food Awards, eða „Best street food event organiser in Europe“. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Götubitanum - Reykjavik Street Food.

Götubitinn – Reykjavík Street Food hefur verið tilnefndur sem „Besti viðburðarhaldarinn í Evrópu“ á European Street Food Awards, eða „Best street food event organiser in Europe“. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Götubitanum - Reykjavik Street Food.

Mikið fjölmenni hefur mætt á Götubitann undanfarin ár og fjöldi …
Mikið fjölmenni hefur mætt á Götubitann undanfarin ár og fjöldi matarvagna eykst með hverju árinu sem líður. Ljósmynd/Aðsend

„Þetta er í fyrsta sinn sem þessi verðlaun eru veitt og því er mikill heiður fyrir Götubitann og Götubitahátíðina að fá þessa tilnefningu þar sem það eru tugi hátíða haldnar víðs vegar um Evrópu á ári hverju,“ segir Róbert Aron Magnússon framkvæmdastjóri Götubitans ehf.

Atli Snær hjá Komo mun einnig keppa í Þýskalandi um …
Atli Snær hjá Komo mun einnig keppa í Þýskalandi um titilinn „Besti götubitinn í Evrópu.“. Ljósmynd/Aðsend

Rafræn kosning er þegar hafin og geta allir tekið þátt sem vilja. Úrslit verða síðan tilkynnt dagana 6-8. október næstkomandi á European Street Food Awards hátíðinni sem haldin verður í Saarbrucken í Þýskalandi en eins og áður hefur komið fram þá mun Komo keppa fyrir Íslands hönd um „Besti Götubitinn í Evrópu“.

Kosning er opin öllum og  er hún nú í fullum gangi og vill Róbert hvetja alla að kjósa „Götubitann - Reykjavík Street Food“. Sjá hér.

Einnig er hægt að fara inn á eftirfarandi vefsíðu hér og velja hlekk þar.

mbl.is