Blautt bónorð við Seljalandsfoss

Á ferðalagi | 26. september 2024

Blautt bónorð við Seljalandsfoss

Það virðist vera afar vinsælt að fara á skeljarnar og bera upp bónorðið umvafinn stórbrotinni íslenskri náttúru, þá sérstaklega við mikilfenglega fossa landsins. 

Blautt bónorð við Seljalandsfoss

Á ferðalagi | 26. september 2024

Falleg stund!
Falleg stund! Samsett mynd

Það virðist vera afar vinsælt að fara á skeljarnar og bera upp bónorðið umvafinn stórbrotinni íslenskri náttúru, þá sérstaklega við mikilfenglega fossa landsins. 

Það virðist vera afar vinsælt að fara á skeljarnar og bera upp bónorðið umvafinn stórbrotinni íslenskri náttúru, þá sérstaklega við mikilfenglega fossa landsins. 

Fjölmargir erlendir ferðamenn hafa deilt skemmtilegum myndskeiðum af trúlofun sinni á samfélagsmiðlasíðunni TikTok síðustu vikur og mánuði sem öll hafa vakið heimsathygli.

Í gærdag bættist eitt slíkt í bunkann. 

Rússnesk kona að nafni Alexandra deildi myndskeiði af trúlofun sinni og sýndi frá því þegar hennar heittelskaði fór á skeljarnar við Seljalandsfoss. 

„Augnablik sem ég gleymi aldrei,“ skrifaði hún við myndskeiðið sem þúsundir hafa þegar líkað við. 

Tíma­ritið Condé Nast Tra­vell­er valdi Ísland sem einn af bestu stöðum í heimi til þess að bera upp bón­orðið í sam­an­tekt sinni á síðasta ári og virðist það vera rétt þar sem margir yfirgefa landið með hring á baugfingri.

mbl.is