Umboðsmaður bandarísku leikkonunnar Tori Spelling, Ruthanne Secunda, hefur kallað eftir ítarlegri rannsókn á talningu atkvæða Dancing With the Stars í kjölfar þess að Spelling datt úr keppni í fyrstu umferð þáttaseríunnar sívinsælu.

Spelling, best þekkt fyrir leik sinn í Beverly Hills, 90210, náði ekki að heilla dómara og aðdáendur hæfileikakeppninnar með sporum sínum á dansgólfinu og var því send heim ásamt svindlaranum Önnu „Delvey“ Sorokin í tvöföldum útslætti á þriðjudag.
Secunda var gestur í hlaðvarpsþætti Spelling, Misspelling, á miðvikudag og sagði útkomuna vera algjört hneyksli.
„Það er galli í talningakerfinu, ég heimta endurtalningu,“ sagði Secunda þegar stöllurnar ræddu um úrslitin.
Spelling, sem dansaði rúmbu með rússneska atvinnudansaranum Pasha Pashkov, sagðist ekki hafa búist við að detta út í fyrsta þætti seríunnar en sagði reynsluna hafa verið dásamlega.